16.03.1929
Efri deild: 24. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2456 í B-deild Alþingistíðinda. (1129)

13. mál, hafnargerð á Skagaströnd

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Jeg þarf fáu að svara hæstv. forseta d. Hann getur ekki felt sig við brtt. n., og er ekkert við því að segja. Hinsvegar hlýtur hann að játa það, að n. er málinu hlynt, enda kom það berlega fram í minni fyrri ræðu.

Út af ræðu hv. 3. landsk. þm. vil jeg segja það, að þótt nauðsynlegt sje að koma upp hafnargerð á Skagaströnd, er ekki þar með sagt, að ekki sje svipað ástatt annarsstaðar, einkum ef gengið er út frá, að hjer sje um fiskihöfn að ræða. En þó að jeg líti svo á, að Skagaströnd kunni að verða fiskihöfn í framtíðinni, get jeg ekki fallist á, að þessu sje nú sem stendur til að dreifa. Það er ómótmælanleg staðreynd, að höfnin þar er fyrst og fremst verslunarhöfn, eins og nú er. Framhjá því verður ekki komist. Hitt skal jeg játa, með tilliti til þess, að þarna verði fiskihöfn í framtíðinni, að það gerði ekkert til, þó að inn í 11. gr. væri sett heimild um að leggja hafnargjöld á báta þá og skip, sem höfnina nota, en mjer finst það óviðfeldið, þar sem nú er hjerumbil eingöngu um róðrarbáta að ræða. Annars fæ jeg ekki sjeð, að hætta sje á því, ef fyrirtækið á annað borð kemst á fót, að þetta fáist ekki í gegn, þar sem vitanlegt er, að það verður eitt af aðaltekjum hafnarinnar. Hinsvegar er ekkert á móti því, að n. taki þetta til athugunar fyrir 3. umr., þó að jeg búist ekki við, að n. sjái brýna nauðsyn til að bæta þessu inn í frv.

Því hefir verið haldið fram, að á Skagaströnd stæði öðruvísi á að því er snertir fjárhagsafkomu hjeraðsins en víða annarsstaðar, þar sem svipuð hafnarlög hefðu verið sett. Þetta kann að vera rjett að því er snertir Reykjavík og Vestmannaeyjar. En jeg hygg, að svipað hafi verið ástatt með Ólafsvík, að því undanteknu, að þar var strax í upphafi um fiskihöfn að ræða. Sama er að segja um ýmsa staði á Austurlandi, t. d. alt svæðið frá Djúpavogi og suðureftir. Þar er hafnlaust með öllu, en ágætis fiskimið skamt undan landi. Það er því hin brýnasta nauðsyn að koma þar upp fiskihöfn, en jeg hygg, að það verði miklum örðugleikum bundið í nánustu framtíð.

Mjer finst, að við í sjútvn. höfum sýnt, að við viljum gera undantekningu að því er þessa höfn snertir, með því að leggja til, að ríkissjóðstillagið verði hærra en áður hefir verið undir svipuðum kringumstæðum. Jeg fæ ekki betur sjeð en að það sje afarvarhugavert að skapa þá reglu, að ríkissjóður leggi fram helming byggingarkostnaðar til slíkra mannvirkja sem þessa. Og ef sú stefna yrði tekin upp, yrði um leið að gera ráð fyrir, að ríkið hefði einhverja tekjuvon af viðkomandi höfn. Með því einu móti væri hugsanlegt að ganga út á þessa braut. En þó verð jeg að segja það, að við megum varla búast við að geta mætt kröfum og þörfum landsmanna alment, ef ekki verður vikið af þessari braut.

Jeg hygg, að öll Austur-Húnavatnssýsla standi óskift að þessu máli, enda ríður henni á miklu að fá góða verslunarhöfn. Vegalagningar eru mjög auðveldar frá Blönduósi til Skagastrandar, nema hvað brúa verður nokkrar minni háttar ár. Jeg bygg því, að þessi höfn verði fyrst og fremst notuð til afgreiðslu á vörum við austanverðan Húnaflóa. Og á þessu byggi jeg þá skoðun mína, að hjer sje svo að segja eingöngu um verslunarhöfn að ræða, þó að jeg hinsvegar játi, að ekki sje loku skotið fyrir, að Skagaströnd verði fiskihöfn í framtíðinni.

Jeg sje svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta. Ef hv. deild sjer sjer fært að samþ. frv. óbreytt að því er snertir ríkissjóðstillagið, er ekkert nema alt gott og blessað um það að segja. Mjer er það enginn þyrnir í augum, — svo mikið er víst. Jeg ann Húnvetningum alls hins besta. En mjer dylst ekki, að ef við nú göngum inn á þessa braut, verður mjög vafasamt, að við getum fylgt henni í hvert skifti, sem um svipuð tilfelli er að ræða.