21.03.1929
Efri deild: 28. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2472 í B-deild Alþingistíðinda. (1139)
13. mál, hafnargerð á Skagaströnd
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Jeg vil minna hv. 6. landsk. á það, að þegar ráðist er í mannvirki sem þessi, þá e það gert með það fyrir augum, að þau svari kostnaði annaðhvort beint eða óbeint. Jeg hefi haldið því fram, að þegar um landbúnaðarhjerað sje að ræða, þá komi hagnaðurinn fremur óbeinlínis, en aftur beint þegar um fiskiveiðahöfn er að ræða, sem gefur von um góðar, beinar tekjur. Nú virðast allir sammála um það, að hjer verði um fiskihöfn að ræða að miklu leyti, og eru því forsendur sjútvn. fyrir því að lækka tillagið rjettar. Og þar sem við trúum á það, að þessi höfn geti gefið góðar tekjur, er ekki ástæða til að leggja mjög mikið óafturkræft ríkisfje í hana, ef hún kemur til með að renta sig vel. Á því verður að byggja. Og sje ekki hægt að byggja á því, þá verður auðvitað alt vafasamara um fyrirtækið. En jeg lít einmitt svo á, að hún muni bera sig mjög vel, a. m. k. er fram líða stundir. Og þá sje jeg heldur enga skynsamlega ástæðu til þess að fara að leggja út fje úr ríkissjóði vegna eftirkomendanna, meira heldur en nú stendur í frv., ef það er álit allra, að fyrirtækið muni svara vel arði sjálft.
Hv. 6. landsk. talaði um, að þetta væri baggi á sýslunni. En það er ekki rjett að orði komist, því fyrst og fremst er það hafnarsjóður, sem tekur þetta lán. (JónJ: Sýslan verður í ábyrgð). Það er að vísu rjett. En til þess að sýslufjelaginu verði íþyngt, þarf fyrirtækið að bera sig illa. En þá er ríkissjóður líka í ábyrgðinni og mundi sennilega hlaupa undir bagga með sýslufjelaginu, ef það yrði hart úti. Og jeg tel mun á því, hvort fje er lagt fram í upphafi óendurkræft, eða að hugsanlegt er, að hlaupið sje undir bagga síðar, ef illa fer. En þar sem von er um, að fyrirtækið beri sig, þá vil jeg láta það sýna sig, að það þurfi meiri styrk, áður en hann er veittur. Jeg vil ekki eins og hv. 6. landsk. segja, að hann hafi haft hausavíxl á rökunum, en mjer finst, að hann hafi ekki gert sjer það nógu ljóst, að þar sem fyrirtækinu eru trygðir góðir tekjustofnar, þá sje ekki rjett að leggja meira fram, fyr en þörfin sýnir nauðsyn þess. Máske verða fyrstu árin erfið, meðan verið er að byggja höfnina, svo bjarga verði fjárhag hennar með bráðabirgðaláni. En með þeim tekjustofnum, sem ráðgert er, að höfnin hafi, eru líkur til, að árlegar tekjur hennar verði áður langt líður um eða yfir 100 þús. kr. Jeg hefi að vísu ekki full gögn til að áætla þetta nákvæmlega, en líkur eru fyrir þessum tekjum, þegar höfnin er fullgerð. Sje jeg því ekki betur en sæmilega sje sjeð fyrir framtíð fyrirtækisins.
Jeg skal svo ekki lengja umr. meira. Aðeins benda á það, að ekki má taka upp þá stefnu, að ráðast í fyrirtæki, sem ekki er full ástæða til að ætla, að standi undir sjer í framtíðinni. En af því jeg hefi þá trú, að þetta fyrirtæki muni gera það, þá legg jeg til, að frv. verði samþ. óbreytt.