21.03.1929
Efri deild: 28. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2476 í B-deild Alþingistíðinda. (1141)

13. mál, hafnargerð á Skagaströnd

Fjmrh. (Einar Árnason):

Hv. 3. landsk. andmælti brtt. á þskj. 173, og vil jeg því víkja nokkrum orðum að till. Jeg gæti vel trúað því, að hv. þm. hefði borið fram svipaða till. og þessa, ef hann hefði verið fjmrh. Veit jeg, að í hans ráðherratíð gerði hann margt svipað til þess að tryggja hag ríkissjóðs, ef honum fanst eitthvað það á ferðinni, er orðið gæti ríkissjóði útgjaldaauki. Um hitt má auðvitað deila, hve langt hafi átt að fara til þess að tryggja það, að eigi verði ráðist í þessar framkvæmdir að lítt hugsuðu máli. t. d. hvort heimta á einhvern ákveðinn meiri hl. í sýslunefnd eða samþyktir tveggja sýslufunda í röð. — Það er vitanlegt, að stundum hafa verið gerðar samþyktir, er voru lítt hugsaðar fyrirfram, og iðraði menn þess þá á eftir. Jeg fyrir mitt leyti hefði helst kosið, að almenn kosning til sýslunefndar færi fram á milli þeirra funda, er ákvörðun taka um þetta mál, enda hefði jeg þá ekki farið fram á nema einfaldan meiri hl. En slíkt ákvæði er ekki hægt að setja. Það er vel hugsanlegt, að sýslunefndarfundur tæki ákvörðun í þessu máli án þess að hjeraðsbúum væri gerður kostur á að segja álit sitt. Hinsvegar þegar um samþykt tveggja funda er að ræða, hafa hrepparnir tækifæri til þess að gera sínar samþyktir um málið. En ákvæði þau, er till. felur í sjer, eru engin einsdæmi.

Í mörgum stórfyrirtækjum hefir það verið ákveðið til frekara öryggis, að t. d. upphæð úr varasjóði megi ekki greiða fyr en það hefir verið samþ. af tveim aðalfundum í röð. Hafði komið í ljós, að gerðar höfðu verið fljótráðnar samþyktir á einum aðalfundi, en þóttu síðar ekki heillavænlegar. En síðan þetta ákvæði hefir verið sett í lög þessara fyrirtækja, hefir slíkt eigi komið fyrir, og hafa allir vel við unað. — Jeg hefi borið till. mína undir n. þá, er hjer átti hlut að máli, sömuleiðis hv. 6. landsk., og hafa þeir hv. þm. á hana fallist. Till. flutti jeg til þess eins að tryggja hagsmuni hjeraðs og ríkissjóðs, og áleit jeg það skyldu mína að benda á það, að nauðsynlegt væri að fara varlega í þessu máli.