22.04.1929
Neðri deild: 51. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2482 í B-deild Alþingistíðinda. (1151)

13. mál, hafnargerð á Skagaströnd

Sigurjón Á. Ólafsson:

Jeg ætla að gera grein fyrir brtt. mínum á þskj. 383. Jeg gat ekki fylgt meiri hl. n. að málum að því er snertir tillag ríkissjóðs til hafnargerðarinnar. Mín skoðun er í fyrsta lagi bygð á því, að slíkt framlag hefir allajafnan verið en þó eru dæmi til þess, að ríkissjóður hafi lagt fram 1/3, en það er líka það hæsta. Það vill svo til, að nú liggja hvorki meira nje minna en 4 hafnarfrv. fyrir þinginu. Í tveimur þeirra er farið fram á 2/5 kostnaðar, einu 1/3 og einu helming. Jeg held því, að ef sú stefna er tekin hjá Alþingi, að hafa framlagið svona hátt, verði óvandari eftirleikurinn, því að þá er skapað fordæmi, sem mun verða fylgt í framtíðinni. Það virðist engin þörf vera á að ganga svo langt að taka þetta mikla stökk frá 1/4 upp í 2/5.

Seinni brtt. mín er um ábyrgð ríkissjóðs á því fje, sem á vantar, þegar búið er að veita 1/3. Jeg þarf ekki að fjölyrða um hana, en vona, að hv. dm. geti fallist á hana.