22.04.1929
Neðri deild: 51. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2486 í B-deild Alþingistíðinda. (1155)

13. mál, hafnargerð á Skagaströnd

Sveinn Ólafsson:

Jeg hefi ritað undir nál. á þskj. 370 með fyrirvara. Þykir mjer rjett að gera grein fyrir honum. Jeg get kannast við það, að ef þetta frv. ætti að skoðast eins og slæmt fordæmi fyrir tillögum ríkissjóðs til hafnarbóta alment, þá stend jeg að því leyti með hv. 4. þm. Reykv. um það atriði. En að jeg þó get fylgt þessu frv., þrátt fyrir það, þótt vikið sje frá þeirri venju, sem ríkt hefir um styrk til hafnarmannvirkja, er af því, að jeg tel þetta ekki hafnarbót eða byggingu í venjulegum skilningi þess orðs, heldur miklu fremur lendingarbót, en sú venja hefir gilt, að þær hafa verið styrktar meira úr ríkissjóði en hafnargerðir, sem sje með alt að helmings framlagi. Það er rjett, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði, að venja hefir verið að greiða hluta af kostnaðarupphæð hafnarbóta úr ríkissjóði. En til lendingarbóta hefir verið greiddur helmingur kostnaðar úr ríkissjóði. Þetta hefir verið aðalreglan. Nú hefir hv. 4. þm. Reykv. komið fram með einskonar miðlunartill. á þskj. 383. Vill hann, að ríkissjóður leggi fram kostnaðar. En þar sem mjer skilst, að hjer sje aðeins um lendingarbót að ræða, a. m. k. fyrst um sinn, og lítil efni fyrir hendi hjá hreppsfjelagi því, sem hlut á að máli, til að standast kostnað fyrirtækisins, þá þykir mjer tillag ríkissjóðs ekki óhóflegt eins og það er ákveðið í frv., enda lít jeg svo á, að ekki sje um neitt fordæmi um almennar hafnargerðir að ræða í þessu sambandi.

Um brtt. þær, sem fyrir liggja, hefi jeg lítið að segja. Um brtt. á þskj. 383 hefi jeg þegar sagt álit mitt. En um brtt. á þskj. 382 get jeg vísað til þess, sem hæstv. fjmrh. sagði um hana. Er jeg honum sammála um það, að þau skilyrði, sem þar eru sett um samþykki sýslufunda, eiga að standa. Um síðari brtt. á því þskj. get jeg sagt, að mjer þykir hún svo smávægileg, að jeg sje ekki ástæðu, hennar vegna, að hrekja frv. milli deilda, þegar þess er gætt, að eftir mínu áliti er hjer aðeins um lendingarbót að ræða.