22.04.1929
Neðri deild: 51. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2503 í B-deild Alþingistíðinda. (1165)
13. mál, hafnargerð á Skagaströnd
Benedikt Sveinsson:
Það hafa komið fram mjög mikilvægar skýringar um mál þetta í dag, er hv. dm. hafa eigi átt kost á að heyra fyrr. Vil jeg einkanlega þakka hv. þm. V.-Húnv. fyrir þá hreinskilni, er hann hefir sýnt, og upplýst málið frá sínu sjónarmiði og annara manna í Húnavatnsþingi, sem hann þekkir.
Oft hafa verið borin fram mál af framfarahug hjeruðunum til þrifa, en þau hafa löngum of lítið rædd verið og hafa ekki náð að verða samgróin hug hjeraðsbúa, áður en þau væru borin fram á Alþingi. Svo hefir verið um framfaramál hjeraðanna austanfjalls, sem hæstv. forseti Sþ. hefir haft þau orð um hjer á Alþingi, að hjeruð þessi hafi verið gerð að „tilraunadýrum“ með því að demba á þau nýmælum og framfaramálum. Þetta mál er nýmæli og framkvæmd þess kostar órafje; er því sjálfsagt að athuga það vel áður til lykta sje ráðið, einkum þar sem fátækt sýslufjelag á að taka á sig svo mikla ábyrgð, sem hjer er um að ræða.
Víst mun mikil þörf á, að gerðar verði hafnarbætur á þessum stað, þegar hjeraðsbúar telja tímabært. Liggur vel við til sjávarútvegs, en engin örugg höfn í nánd. Væri auðvitað ákjósanlegt fyrir hjeraðsmenn að fá slíkt mannvirki, ef aðrir greiddu kostnaðinn við það; en hitt er annað mál, hvort þeir hafa svo mikinn hag af hafnargerðinni, að þeir vilji leggja fram sjálfir alt að 320 þús. kr. til hennar, eins og hjer er gert ráð fyrir. Þetta þarf að athuga vandlega. En svo heyrist frá einum mikilsmetnum þm. og hinum ráðsvinnasta í n., að hjer sje ekki um hafnargerð að ræða, heldur lendingarbót. — Þetta eru mikilsverðar skýringar, því að það skiftir ekki svo litlu máli, hvort ríkissjóður leggur styrk til hafnargerðar eða lendingarbóta. Og meðan málið er ekki betur rannsakað en svo, að vjer vitum ekki til hlítar, hvort hjer er um hafnargerð eða lendingarbót að ræða, virðist undirbúningur þess furðuskamt á veg kominn, því að lendingarbót getur ekki kallast hafnargerð. Málið virðist svo vaxið, að best mundi það afgr. hjeðan með rökst. dagskrá að þessu sinni. Jeg skal ekki verða meinsmaður lendingarbóta eða hafnargerðar við Spákonufellshöfða, þegar málið er að fullu undirbúið í hjeraði, þótt jeg taki undir með þeim, sem mæla nokkrum varnaðarorðum um þetta mál.
Þar sem þetta er stjfrv. og stj. mælir eindregið með því, að 2. málsgr. 2. gr. standi kyrr, þar sem segir, með leyfi hæstv. forseta: „Skal ábyrgð sýslunnar vera samþykt á tveim aðalfundum í röð með minst atkv. allra sýslunefndarmanna, enda sje slík samþykt eigi eldri en tveggja ára, þá er ríkissjóðsábyrgðin er veitt“ —, þá finst mjer óráð að fella slíka tryggingu niður.
Finst mjer þetta ákvæði vera viturlega sett inn, því að sýslunefndin og sýslan sjálf skoðar sig með rjettu siðferðislega bundna, ef samþ. er á tveim sýslufundum ábyrgð sýslunnar, en miklu síður, ef ábyrgðarsamþykki er flaustrað af á einum sýslufundi.
Vil jeg því leggja ríka áherslu á, að brtt. um að fella þetta ákvæði niður gengur í þveröfuga átt við það, sem rjett virðist vera.