22.04.1929
Neðri deild: 51. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2505 í B-deild Alþingistíðinda. (1166)

13. mál, hafnargerð á Skagaströnd

Óafur Thors:

Jeg ætla ekki að deila við hv. þm. N.-Þ. um ágæti till. okkar hv. þm. Vestm., enda get jeg ekki fært fram ný rök henni til stuðnings. Það, sem kom mjer til þess að taka til máls, voru orð hv. þm. V.-Húnv. Hann taldi, að þetta mál, sem hjer er til umr., væri stórpólitískt mál, og undraðist hann, hve ljelegar upplýsingar jeg hefði fengið um málið. Þær upplýsingar, er jeg meðal annars fer eftir, eru þær, að hæstv. stj. leggur til, að ríkissjóður leggi helming framlags til þessa fyrirtækis, og jeg vænti þess, að hv. þm. V.-Húnv. álíti, að stj. beri ekki fram slíka till. nema til þess sjeu nokkur rök. Auk þess hefi jeg kynt mjer rök þeirra hv. 6. landsk. og hv. þm. A.-Húnv., sem báðir eru Húnvetningar, og ætla jeg einnig, að þau vegi nokkuð í augum hv. þm. Við þessar upplýsingar hafa svo bætst allmargar umsagnir ýmsra manna úr hjeraði, og án tillits til stjórnmálaskoðana þeirra. Það er því engin ástæða til þess fyrir hv. þm. að fjargviðrast út af því, hve heimildir mínar sjeu ljelegar. Og það er einmitt óvenjulegur styrkleiki þessara heimilda, sem veldur því, að jeg læt ekki á mig fá umsögn jafnkunnugs manns og hv. þm. V.-Húnv. óneitanlega er, því að mínar heimildir hníga allar á einn veg, — hve nauðsynin sje rík fyrir Húnvetninga. Ummæli hv. þm. öll sýna, að hann er í raun og veru á móti málinu, en er að reyna að breiða yfir þá skoðun sína, vegna þess að hann ber hlýjan hug til hjeraðs síns og vill ekki snúast öndverður gegn málinu, ef það gæti orðið hjeraðsbúum til góðs. Innst inni í hugskotsfylgsnum hans ríkja þó mótmælin og leita út í orðum hans. Hinsvegar met jeg hreinskilni hv. þm. að verðleikum, en því eru ummæli hans tilfærð, að við nefnum þau sem andstæður við bjartsýni þeirra manna, sem mælt hafa á annan veg, en eru þó honum jafnkunnugir á þessum slóðum. Og við höfum ekki þorað að láta ummæli svo kunnugs manns liggja á milli hluta, því að þau gætu orðið þung á metunum hjá þeim, er ekki hefðu kynt sjer ummæli annara. Síðustu orð mín í þessu máli skulu vera þau, að jeg vænti þess fastlega, að ummæli hinna bjartsýnu megi sín eins mikils og ummæli hinna svartsýnu.