29.04.1929
Neðri deild: 56. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2508 í B-deild Alþingistíðinda. (1170)
13. mál, hafnargerð á Skagaströnd
Magnús Guðmundsson:
Það var látið í ljós við 2. umr. af hæstv. fjmrh., að nokkur hætta fyrir ríkissjóð gæti stafað af frv. þessu. Hafa því verið settar í frv. ýmsar öryggisráðstafanir til að fyrirbyggja þetta. Jeg skal ekki neita því, að þetta geti verið rjett, og þá einkum af því, að það er aðallega einn hreppur, er að höfninni stendur. Nú stendur svo á, að í hafnarmannvirkinu er garður út í eyju, Spákonufellsey. Ef sá garður væri bygður og vegur gerður eftir eyjunni og bryggja við endann, þá fæst þarna gott bátalægi. Kostnaður við þetta færi ekki yfir 125 þús. kr., eftir áætlun vitamálastjóra. Jeg veit, að það er áhugamál þeirra þar nyrðra að framkvæmda þetta fyrst og prófa sig svo áfram með verkið. Með tilliti til þessa hefi jeg flutt brtt. um að heimila ríkisstj. að greiða, er ástæður ríkissjóðs leyfa, án sjerstakrar fjárlagaheimildar, 50 þús. kr. til þessa verks, gegn 75 þús. kr. úr hafnarsjóði. Þetta er sama hlutfall og gert er ráð fyrir í frv. Ennfremur er fylgt sömu reglu um ábyrgð ríkissjóðs á lántöku hafnarsjóðs til þessa verks. Það er lagt á vald ríkisstj., hvort hún telji fært að leggja fram þessa upphæð, og virðist því ekki ástæða til að halda, að hrapað verði að verkinu. Vona jeg, að þó sjútvn. hafi ekki tekið afstöðu til brtt., þá leggist hún ekki á móti henni, að fengnum þessum skýringum.
Út af brtt. sjútvn. vil jeg segja það, að mjer er ekki kunnugt um, hverjir eru eigendur jarða þeirra, er að höfninni liggja. En ef það eru einstakir menn, þá er jeg ekki viss um, að þeir sjeu skyldir að hlíta þessu ákvæði. En ef til vill er hjer um opinberar eignir að ræða, og þó er jeg hræddur um, að ein jörð a. m. k. sje einstaklings eign.