02.04.1929
Efri deild: 34. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2524 í B-deild Alþingistíðinda. (1192)
23. mál, gjaldþrotaskifti
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Jeg vil þakka hv. meiri hl. allshn. góðar undirtektir undir þetta mál og meðferð hennar á því. Að vísu hefir meiri hl. borið fram nokkrar smábreyt., en þær tel jeg heldur til bóta.
En út af andmælum hv. minni hl. gegn frv. vil jeg segja fáein orð. Það er ljóst, ef athugaðar eru aths. við frv. þetta og gagnrýni hv. minni hl., að þar er um stefnumun að ræða, en ekki deilt um formsatriði. Það er játað af öllum, að framþróun þjóðfjelagsins síðasta mannsaldurinn hefir leitt það af sjer, að skiftalög og gjaldþrotalög eru orðin á eftir tímanum og mæta ekki þörf samtíðarinnar. Alvarlegustu meinbugirnir eru í sambandi við gjaldþrotaskiftin.
Þar eð frv. þetta, sem hjer liggur fyrir, er á borð við það besta, sem gert hefir verið til bóta í þessum efnum í nágrannalöndunum, sjerstaklega í Englandi, hygg jeg, að eigi geti verið til bóta, þótt málið verði dregið enn á ný, enda er ástandið þannig í landinu, að það þolir enga bið að gera eitthvað til þess að bæta það. Eins og tekið er fram í aths. frv., gerast allmörg gjaldþrot hjer á landi, sem ætla má, að sá, er til gjaldþrotsins hefir stofnað, hafi dregið stórfje undan. Sjest það best á því, að skömmu síðar byrjar sami maður á stóratvinnurekstri, og að því er virðist með fullar hendur fjár, en bankar og aðrir fyrri viðskiftavinir hans bíða einir halla af gjaldþrotinu. Þetta hlýtur að verða til þess að eitra út frá sjer í viðskiftalífinu. Þegar ráðvandir menn sjá, að menn, sem hafa orðið gjaldþrota upp á fleiri þús. kr., geta skömmu síðar hafið stóratvinnurekstur og lifa í vellystingum praktuglega, en gera hinsvegar ekkert til þess að bæta yfirsjón sína, þá er það sannarlega ekki til þess að auka vinnusemina og ráðvendnina í landinu.
Eins og sjá má á frv., er það ætlunin með því að reyna að hindra, að slík fjársvik eigi sjer stað, en þau koma þráfaldlega fyrir, þegar viðskiftalífið eykst, því að þá myndast oft möguleikar fyrir ófyrirleitna og lævísa fjárglæframenn að losna við skuldir sínar á þennan hátt.
Jeg vil geta þess, að nú verða hjer mörg gjaldþrot, sem ekki eru rannsökuð. Til þess að það sje hægt, verður að kæra, en það er ekki altaf gert. Mjer er kunnugt um eitt gjaldþrot, sem rannsakað var út af smávægilegri kæru, sem fram kom. Gjaldþrotið sjálft leiddi af sjer mörg hundruð þúsund króna tap, en kæran var út af nokkrum hundruðum króna. Það er vafamál, hvort sú kæra hefir nokkuð upp á sig, en hún varð til þess að hægt var að rannsaka gjaldþrotið.
Í frv. er gert ráð fyrir að rannsaka öll gjaldþrot, hvort sem þau eru af óviðráðanlegum orsökum, og því ekki hegningarverð, eða þau eru af sviksemi sprottin. Þar sem um óviðráðanleg óhöpp er að ræða, verður í opinberri auglýsingu í lok skifta skýrt frá því, hve mikið tapið er, en ef líkur eru til þess, að hjer sje um sviksemi að ræða, verður hafin nánari rannsókn.
Býst jeg við því, að menn sjái, að sama þörfin, sem knúði forfeður vora og menn í öðrum sauðfjárlöndum til þess að leggja mjög þunga refsingu við sauðaþjófnaði, þótt um smávægilegt brot væri að ræða, knýr okkur til að taka í taumana hjer. Á sama hátt verður þjóðin, þegar viðskiftalíf hennar eykst og verður fjörugra, að gera sitt ítrasta til þess að hindra það, að lánstraustið verði misnotað. Viðskiftalífið getur ekki þróast nema hægt sje að hegna prettum og sviksemi í því efni, engu síður en hinni minni sviksemi sauðaþjófanna er hegnt.
Þar sem hv. minni hl. hefir mælst til þess, að mál þetta verði tafið, vegna þess að það sje ekki nægilega undirbúið, verð jeg að mótmæla því algerlega. Í frv. er tekið tillit til erlendrar og innlendrar reynslu í þessum efnum, og hafa unnið að því betri lagamenn en venja er til að unnið hafi að stjórnarfrv. á undanförnum árum, enda álít jeg, að frv. verði ekki bætt með þeim kröftum, sem hjer eru fyrir hendi. Hitt mun mála sannast, að hv. minni hl. er á móti stefnu frv., en á því veltur líf eða dauði frv., hvort sú stefna er rjett eða röng, en hún er sú, að veita fjársvikamönnum aðhald eins og með þarf. Árlega gerast mörg gjaldþrot, sem ekki er hægt að rannsaka eins og löggjöfin er nú. Verður því ekki fyllilega sagt, hve mikinn skaða landið getur haft af því, að mál þetta dragist enn og að ekki sje hægt að veita fjársvikamönnum það aðhald, sem iðja þeirra útheimtir. Jeg legg því til, að frv. verði samþ. með brtt. meiri hl.