29.04.1929
Neðri deild: 56. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2539 í B-deild Alþingistíðinda. (1206)
23. mál, gjaldþrotaskifti
Magnús Guðmundsson:
Hæstv. forseti (JörB) nefndi mig frsm. minni hl., er hann veitti mjer orðið. Jeg veit ekki, hvers vegna hann gerir það. Í nál. því, sem hjer liggur fyrir, er þess getið, að tveir nm. hafi ekki tekið þátt í afgr. þessa frv. úr n., en það er ekkert tekið fram, af hverju það hafi verið. Jeg býst helst við því, að mái þetta hafi verið afgr. úr n. meðan jeg lá veikur. En þá hefði samt verið rjett að geta þess. (MT: Jeg mundi víst ekki eftir því og bið velvirðingar á því). En hvernig því hefir verið varið með hv. þm. Barð., veit jeg ekki. Hjer er ekki nema um tvent að gera: Annaðhvort hefir þetta verið gert meðan jeg var veikur, eða það hefir verið gert með vilja að útiloka mig frá nefndarstarfi. Mín aðstaða er því sú, að jeg hefi engar till. um þetta að gera sem nm. Jeg geri ráð fyrir því, að þessu máli hafi átt að flýta og því hafi ekki mátt bíða eftir því, að jeg gæti tekið þátt í nefndarstarfi um afgreiðslu þess. Við því er ekkert sjerstakt að segja. En hitt hefði ekki verið nema sjálfsögð kurteisi, að geta þess, að jeg var forfallaður.
Jeg hefi því miður ekki haft tóm til að athuga þetta mál sem skyldi. Jeg vissi ekki, að n. hafði tekið það fyrir, fyr en jeg sá nál. frá þremur nm. En síðan hefi jeg ekki mátt vera að því að athuga það, þar sem fundi hafa staðið allan daginn. Jeg held að meginhluti þessa frv. sje tekin upp úr gjaldþrotalögunum frá 1894 sem talin eru orðin úrelt að ýmsu leyti. En aðalbreyt. frá þeim virðist mjer vera sú, að allir þeir, sem galdþrota verða, skulu ganga undir rannsókn hjá lögreglustjóra, og þá sæta ábyrgð, ef saknæmi sannast. Hið nýja í þessu er það, að allir, sem gjaldþrota verða, skuli ganga undir slíka rannsókn. En hitt er ekki nýtt, að sviksamlegum gjaldþrotum skuli hegnt. Það er í hegningarlögunum frá 1869, því að þau leggja stranga refsingu við því að skjóta fje undan. Jeg veit ekki, hversu mikla þýðingu þetta ákvæði kann að hafa, en jeg sje ekkert, sem mælir á móti því, að allir þeir, sem gjaldþrota verða, sjeu yfirheyrðir. Jeg geri ráð fyrir því, án þess að jeg hafi athugað það nákvæmlega, að það sje ekki gert sýslumönnum að skyldu að framkvæma það fyrir ekki neitt. Það er gefið, að sýslumenn verða að leggja á sig ferðalög vegna þessarar skyldu, og eiga þeir þá borgun skilið fyrir það. En mjer finst, að til mála geti komið, að sá kostnaður, sem af þessu leiðir, sje greiddur af þrotabúinu sjálfu. Þótt gjaldþrot sjeu tíð, þá er þó svo fyrir þakkandi, að flest þeirra gefa enga ástæðu til sakamálsrannsóknar. En með þessu þarf þó enginn að hugsa sjer, að hægt sje að koma í veg fyrir það, að gjaldþrot verði gerð í sviksamlegum tilgangi. En máske verður þetta til þess, að komist verði fyrir svik, og vil jeg þess vegna ekki mæla á móti því, að þetta verði gert. En slíkri rannsókn fylgir mikill kostnaður. Og jeg fyrir mitt leyti er í miklum vafa um það, hvort sá kostnaður á að greiðast af opinberu fje eða búinu sjálfu. Að vísu verður hann að greiðast af því opinbera, þegar búin eru svo fátæk, að þau geta ekkert greitt. Annars finst mjer það vafasamt.
Jeg tók eftir því, að hv. frsm. þótti ákvæði 32. gr. frv. ströng, þar sem þau skylda skiftaráðendur skilyrðislaust til þess að hafa búafje á vöxtum. Alveg hið sama kemur fram hjá lögmanninum hjer í Reykjavík í brjefi hans til allshn. Ed. Hann telur, að erfitt verði að framfylgja því ákvæði. Jeg er á sama máli. Og jeg sje ekki. hvers vegna skiftaráðendur eiga í þessu efni að fylgja öðrum reglum en þeim, sem tíðkast í hinu almenna viðskiftalífi. Þar er það alls ekki reglan að svara Vöxtum af geymslufje frá degi til dags og af hvað lítilli upphæð sem er. Jeg hefði viljað bæta við brtt.: og máli skifta fyrir búið“ — enda mun vera átt við það.
Jeg heyrði, að hv. frsm. hafði eitthvað eftir einhverri stjórn um það, að hún átti að hafa leyft sýslumönnum að taka til sín vexti af búafje. Jeg veit ekki, hvaða stj. hefir leyft þetta. Jeg heyrði, að hæstv. dómsmrh. afsakaði sig. Og jeg minnist heldur ekki að hafa sagt neitt slíkt.
Þá talaði hæstv. dómsmrh. um það, að hann ætlaði að leggja fyrir næsta þing till. um nýja tilhögun um greiðslu á skrifstofukostnaði sýslumanna, rjettlátari en nú væri og bygða á skýrslum endurskoðunarmanna, sem hafa verið að yfirlíta embættisfærslu sýslumanna. Þetta er nú víst ágætt fyrir sýslumennina, því ef þetta verður gert, þá hækkar vafalaust sú upphæð, er þeir fá greidda, ef þeir eiga að fá endurgreiddan nauðsynlegan kostnað. En hitt fæ jeg ekki skilið, að þessar skýrslur, sem hæstv. ráðh. talaði um, sjeu neitt betri grundvöllur til að byggja á en þær skýrslur, sem sýslumenn gefa og eiga að gefa um tollstarf í kaupstöðum, búskifti, ómyndugra fje, dómstörf og þess háttar. Um þetta eiga þeir að gefa skýrslur, og er skrifstofufje til þeirra skift eftir því. En svo litlu fje hefir verið varið til þeirra skifta, að þeir hafa aldrei fengið eins mikið eins og þessi starfrækslu. hefir kostað þá raunverulega.
Jeg skal svo enda þessi orð mín á því, að þar sem jeg vegna lasleika hefi eigi getað kynt mjer þetta mál til hlítar, þá mun jeg ekki gera það að deiluatriði, en læt það hlutlaust.