29.04.1929
Neðri deild: 56. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2544 í B-deild Alþingistíðinda. (1209)
23. mál, gjaldþrotaskifti
Frsm. (Magnús Torfason):
Jeg vil byrja mál mitt með því að lýsa yfir því, að það var síður en svo, að jeg væri neitt að álasa þeim hv. meðnm. mínum, sem ekki tóku þátt í meðferð þessa máls í allshn. Það mun einmitt rjett vera, að hv. 1. þm. Skagf. hafi verið sjúkur um þetta leyti. En um það var mjer þó eigi kunnugt, þegar nál. okkar var gert. Um hv. þm. Barð. er það að segja, að hann mun að undanteknum eitthvað tveimur dögum, sem hann var forfallaður, hafa verið hjer í þinghúsinu og látið vita af komu sinni hingað. Jeg var því enga vanrækslu að bera á brýn þessum hv. þm. Enda var það ekki mitt, heldur okkar góða formanns að gera það, ef slíkt hefði þurft. En hjer var þó um nokkurt fordæmi að ræða, þar sem var afgreiðsla á frv. um lögreglustjórann á Akranesi, sem aðeins nokkur hluti allshn.manna afgr. úr n. Má vera, að einhverjum hafi dottið í hug að þakka fyrir síðast.
En svo jeg víki aftur að framgangi þessa máls, þá get jeg verið hæstv. dómsmrh. þakklátur fyrir það, hve vel hann hefir tekið í brtt. n. Ennfremur fyrir það, að hann hefir huga á að koma sýslumannsembættunum í það horf, sem þau þurfa að komast, og hefir þegar sýnt áhuga sinn í þessu efni. Hið sama get jeg og sagt til hv. 1. þm. Skagf., að jeg get verið honum þakklátur, enda tel jeg, að við sjeum sammála að mestu. En hvað snertir lögreglurannsókn í gjaldþrotamálum, þá er þarf engin nýlunda í löggjöfinni, að rannsókn sje látin fram fara, hvort sem um sekt er að ræða eða ekki. Svo er það t. d, um brunamál. Brennur er skylt að rannsaka, enda þótt engum detti í hug, að kveikt hafi verið í af ásettu ráði.
Þá vjek hv. 1. þm. Skagf. að því, að þetta mundu verða mjög víðtækar rannsóknir, ef gera ætti þær til nokkurrar hlítar. Bjóst hann við því, að kostnaðurinn, sem af þeim leiddi, yrði að greiðast úr ríkissjóði, en gat þess, að hann gæti þó hugsað sjer, að þrotabúin greiddu hann. Jeg verð að viðurkenna það, að hv. 1. þm. Skagf. hefir nokkuð til síns máls í þessu. Á því er enginn vafi, að slíkar rannsóknir sem þessar verða til að treysta viðskiftalífið, og frá því sjónarmiði gæti maður hugsað sem svo, að þrotabúin væru ekki of góð til þess að greiða kostnaðinn, og að jafnvel væri rjett að láta þau gera það; en á móti þessu mælir, að það er nú einu sinni almenn regla, að slíkar rannsóknir sjeu kostaðar af opinberu fje. Og jeg get hugsað mjer, að eigendur búanna ljetu þessar dýru rannsóknir niður falla, ef búafjeð á að greiða kostnaðinn af þeim. Jeg er því ekki sannfærður um, að rjett sje að fara þessa leið.
En það er annað í þessu efni, sem rifjaðist upp fyrir mjer í sambandi við þetta og vert er að drepa á. Hv. 1. þm. Skagf. sagði rjettilega, að þetta gætu orðið mjög víðtækar rannsóknir, sem hefðu mikinn kostnað í för með sjer, og það einnig fyrir rannsóknardómarann. Þegar launal. var breytt 1919, leit jeg og margir fleiri sýslumenn svo á, að með ákvæðinu um, að allur embættiskostnaður skyldi greiddur úr ríkissjóði, væri því slegið föstu, að rannsóknardómurum skyldi greiða dagpeninga sem öðrum embættismönnum, enda er ekkert hægt að ferðast, svo að það hafi ekki bein útgjöld í för með sjer fyrir þann, sem það gerir. Þessu var neitað af þáv. dómsmrh., sem leit svo á, að sjerákvæði þyrfti um þetta efni. Samkv. þessu verður því að breyta launal. þessara embættismanna, svo að þetta verði felt niður. Jeg tek þetta aðeins fram hæstv. dómsmrh. til athugunar.
Hv. 1. þm. Skagf. taldi, að skýrara væri að lengja brtt. við 32. gr. frv. — það er 10. brtt. á þskj. 396 — þannig, að á eftir orðunum „máli skiftir“ komi: fyrir búin. Mjer finst þetta nú óþarfi, af því að rjett á eftir segir svo í sömu gr., að ávaxta skuli í sparisjóði fje búa, svo að meiningin kemur greinilega í ljós. En ef hv. 1. þm. Skagf. vill bera fram brtt. í þessa átt við 3. umr., þá er fjarri því, að jeg hafi neitt á móti því.
Viðvíkjandi því, sem hv. 1. þm. Skagf. ympraði á um kostnaðinn af lögreglurannsóknum, get jeg lýst yfir því, að jeg býst við, að n. muni taka það til athugunar til 3. umr. og flytja brtt. þar að lútandi, ef henni þykir ástæða til.
Jeg er samþykkur hv. 1. þm. Skagf. um það, að það er síður en svo, að þessi hörðu ákvæði gagnvart skiftaráðendunum, ásamt ákvæðunum um það, að búin fái alt, sem þau geta fengið, sjeu til hagnaðar fyrir ríkið, því að það verður að bæta skiftaráðendunum upp þær tekjur, sem þeir til þessa hafa haft af vöxtunum. Hvað mig snertir, þá hafa þessar vaxtatekjur verið örlitlar, og stundum engar. Jeg hefi ekki haft þann sið að láta búin standa óskift, ef jeg hefi getað leitt skiftin til lykta.