16.04.1929
Neðri deild: 46. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2560 í B-deild Alþingistíðinda. (1239)

77. mál, ritsíma- og talsímakerfi

Hannes Jónsson:

Jeg hefi skrifað undir nál. með fyrirvara. Eins og hv. þdm. hafa veitt eftirtekt, þá gengur brtt. n. í þá átt að fella niður línu, sem nú er í símalögunum, frá Hvammstanga og kringum Vatnsnes. Það er feld niður línan frá Vesturhópshólum til Hindisvíkur. Að jeg gat þó verið með n., stafar af því, að landssímastjóri lagði mjög eindregið til, að einhversstaðar á þessari línu væri höggvið í sundur. Jeg hefi ekki getað sannfærst um, að þetta sje með öllu rjett, en viðurkenni þó, að viðauki sá, sem fæst með frv., línan á vestanverðu Vatnsnesi, verði það notameiri, að frv. sje þó til bóta frá því, sem nú er. Mun jeg athuga þetta nánar í samráði við landssímastjóra, og ef jeg sje mjer það með nokkru móti fært, þá flytja brtt. í þá átt, að línan fái að haldast kringum Vatnsnesið, en verði ekki klipt sundur. Ástæðan fyrir því er heldur ekki veigamikil. Eru þar ekki meiri erfiðleikar við eftirlit en yfirleitt mun reynast. Það er víðar hætta á, að símtöl eigi sjer stað án tekna fyrir landssímann. Það getur verið, að verði síminn óslitinn kringum alt nesið, þá komi ekki öll kurl til grafar. En þar sem sú hætta er víðar, þá virðist vera frekar ástæðulítið að taka þessa sveit út úr.

Sem sagt, af því frv. er til bóta frá því, sem nú er, þá skerst jeg ekki úr leik, og þá einkum fyrir það, að landssímastjóri lagði mjög eindregið með þessu. Nú veit jeg til, að kunnugur maður að norðan hefir átt tal um þetta við landssímastjóra, og býst jeg því við að ræða þetta nokkru frekar við 3. umr.