18.04.1929
Neðri deild: 48. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2563 í B-deild Alþingistíðinda. (1245)
77. mál, ritsíma- og talsímakerfi
Gunnar Sigurðsson:
Jeg á hjer ásamt fleirum eina brtt. á þskj. 346, um það, að er símalína verður lögð frá Efra-Hvoli að Geldingalæk, verði bætt við smáspotta upp á Land. Enginn sími er nú sem stendur framan til á landinu, og kemur sjer oft mjög illa, að ekki skuli vera sími í Holtsmúla. Á þessum slóðum er um fjögurra klst. lestagangur á milli stöðva. Landssímastjóri og þeir af samgmn.- mönnum, sem jeg hefi talað við, eru þessu hlyntir.