23.02.1929
Efri deild: 6. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í B-deild Alþingistíðinda. (126)

5. mál, rannsóknir í þarfir atvinnuveganna

Jónas Kristjánsson:

Hæstv. atvmrh. hefir nú játað, að undirbúningur frv. er mjög ófullkominn og mjög í molum að því er kostnaðaráætlun snertir og fyrirkomulag. Enginn leggur út í að byggja stórhýsi án þess að hafa teikningu að því og gera áætlun um kostnað. En hjer liggur engin kostnaðaráætlun fyrir og stj. hefir ekki einu sinni ráðfært sig við læknadeild háskólans um mál þetta nje rætt um þá samvinnu, er kynni að verða milli þessara stofnana, og er það alveg ófært. Bendi jeg á þetta sem dæmi þess, hve málið er illa undirbúið, og er það því verra, sem málið er merkilegt.