23.02.1929
Efri deild: 6. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í B-deild Alþingistíðinda. (127)
5. mál, rannsóknir í þarfir atvinnuveganna
Jón Þorláksson:
Mjer fanst alveg óþarfi af hæstv. forsrh. að fara nú að taka sjer aftur hina fyrverandi stöðu sem blaðritstjóri út af þeim ummælum, sem jeg hafði um þetta frv. Hann hafði sjálfur viðurkent í fyrstu ræðu sinni, að ýmislegt í frv. væri ófullkomið, og hann gerði að nokkru leyti grein fyrir, hvernig á því stæði. Jeg sagði svo ekki annað um þetta en það, að jeg vonaðist til, að hægt yrði að bæta nokkuð úr þessu í þeirri nefnd, sem fengi málið til meðferðar.
Út af þessu rýkur hæstv. forsrh. svo upp og fer að segja það, að hann hafi þó undirbúið þetta mál betur en fyrverandi stjórn. Jeg verð að segja það, að mjer finst það undarlegt, ef hæstv. forsrh. er ekki búinn að skilja það enn, að hann er hjer forsætisráðherra hjá þjóð, þar sem er óendanlega margt ógert. Og ef hann yfir höfuð ætlar að fara að leggja þann mælikvarða á fyrverandi stjórn, að það megi kasta hnútum í hana fyrir það, að hún hafi ekki í sinni stjórnartíð leyst af höndum öll merkileg verkefni fyrir landið, þannig að ekkert verkefni sje eftir handa honum, þá sýnir það yfirtakanlegt skilningsleysi á högum lands og þjóðar. Annars þarf jeg ekki að taka ákúrur hæstv. forsrh. sjerstaklega til mín; jeg hefi aldrei haft forstöðu þeirra mála, sem frv. fjallar um.
Ef annars hefði átt að veita einhverjum ákúrur fyrir það, að þetta kom ekki fram í tíð fyrv. stj., þá geri jeg ráð fyrir, að það sjeu fyrst og fremst þeir menn, sem á þeim tíma höfðu sjerstaka skyldu að vekja athygli á slíkum nauðsynjum og bera þær fram fyrir ríkisstjórnina. Og það ætla jeg hafi verið stjórn Búnaðarfjelags Íslands, og man jeg ekki betur en hæstv. forsrh. stæði töluvert nærri henni í þann tíð. En jeg veit ekki til, að þetta mál hafi komið þaðan til fyrv. stj.
Jeg læt svo útrætt um þessa ómerkilegu slettu frá hæstv. forsrh. í garð fyrv. stjórnar, sem jeg ekki hefi gefið neitt tilefni til. En um málið sjálft hefi jeg engu við að bæta það, sem jeg sagði. Jeg álít sjálfsagt að taka því með mestu vinsemd og reyna að gera á frv. þær umbætur, sem þarf til þess að það verði að lögum í sæmilegum búningi.