25.03.1929
Efri deild: 31. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 292 í B-deild Alþingistíðinda. (133)

5. mál, rannsóknir í þarfir atvinnuveganna

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Hv. frsm. minni hl. bar fram margt í ræðu sinni, sem mælir með því, að frv. fái að ganga fram einmitt nú. Þær ástæður skal jeg eigi ræða frekar að svo stöddu. En hann færði aðallega fram þrjú atriði til mótmæla, og þeim vil jeg gera skil í fám orðum.

Það fyrsta, sem hv. frsm. fann stjórninni til foráttu í þessu máli, var það, að hún hefði eigi leitað til fagfræðinga við undirbúning frv. Þetta er mishermi. Stjórnin hefir einmitt leitað til þeirra fagfræðinga, sem völ var á. Hún hefir leitað til þess eina manns íslensks, sem lagt hefir stund á þær rannsóknir, sem hjer er um að ræða, og sá maður er Skúli læknir Guðjónsson. Staðhættir hjer á landi eru svo sjerstæðir, að erfitt er fyrir erlenda menn að gera sjer fulla grein fyrir þeim og taka tillit til þeirra. Því kaus jeg heldur að snúa mjer til manns, sem sjálfur þekkir þessa staðhætti. Jeg hefi líka ráðgast um þetta mál við menn á efnarannsóknastofunni. Sömuleiðis hefi jeg leitað ráða dýralæknanna, og einn þeirra hefir haft málið til meðferðar á Búnaðarþinginu og lagt samþykki sitt á þetta frv.

Þá sagði hv. frsm., að stjórnin hefði átt að semja við rannsóknarstofnanirnar, áður en hún flutti frv. Þetta gat stjórnin alls ekki gert. Til þess hafði hún ekkert í höndunum. Ef stj. á að geta komið fram sem samningsaðili og með fullum myndugleik gagnvart þessum stofnunum, þarf hún að hafa til þess heimild Alþingis.

Loks kom hv. frsm. að fjárhagshliðinni og sagði, að frv. tæki ekkert fram um það, hvað starfsmenn stofnunarinnar ættu að vera margir. En það verður á valdi Alþingis á hverjum tíma. Það ákveður sjálft, hversu mikið fje skuli leggja stofnuninni, og eftir því fer starfsmannafjöldinn. Veiti þingið t. d. laun handa tveim starfsmönnum, þá verða tveir starfsmenn ráðnir o. s. frv. (JKr: En er það nóg?). Ja, það er alveg á valdi þingsins, hversu mikið það leggur í sölurnar fyrir stofnunina. Stj. fær þar engu um þokað. Eiginlega hefi jeg með þessu frv. bundið landsstjórnina meira en venjulegt er. En það er gert samkv. því „principi“, að heimildir í fjárlögum eigi að vera fyrir þeirri eyðslu, sem þarf að eiga sjer stað. Og mjer er óhætt að lofa því, að þessi heimild skuli ekki verða misnotuð í minni stjórnartíð.

Jeg þykist heldur ekki hafa gefið Alþingi ástæðu til að ætla annað en jeg muni fara gætilega með heimildir. Á síðasta þingi var mjer t. d. veitt heimild til að láta ríkið taka upp verslun með tilbúinn áburð. Sumir hjeldu þá, að stjórnin myndi setja upp eitthvert afskaplegt verslunarbákn til að annast áburðarkaupin. En reyndin hefir orðið sú, að aðalverslun bændanna sjálfra annast þessi viðskifti fyrir litla borgun. Eins og jeg fór varlega með þessa heimild, svo mun jeg og fara með þá heimild, sem mjer yrði veitt, ef það frv., sem nú liggur fyrir, næði samþykki.