25.03.1929
Efri deild: 31. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 294 í B-deild Alþingistíðinda. (134)

5. mál, rannsóknir í þarfir atvinnuveganna

Halldór Steinsson:

Nauðsyn þeirra rannsókna, sem gert er ráð fyrir í frv., liggur eiginlega í augum uppi. En um frv. sjálft er öðru máli að gegna. Verði þetta frv. að lögum, verður sýnilega ekkert nema tómt kák úr framkvæmdum þeim, sem frv. gerir ráð fyrir, eftir því sem til þess er stofnað, og sjálf stofnunin hlýtur að verða mjög kostnaðarsöm. Eigi verkefni hennar að verða eins mörg og frv. gerir ráð fyrir, hygg jeg, að ekki muni veita af að minsta kosti 3 sjerfræðingum til að starfa við hana.

Jeg verð að segja það, að þó að þörf sje allra þeirra rannsókna, sem nefndar eru í frv., þá er hún samt mismunandi brýn. Brýnust þörf er þeirra rannsókna, sem talað er um í 1. lið 2. gr. Og mjer finst, að þær hefðu átt að nægja í bráðina. Eftir að kominn væri fram árangur af þeim, mætti altaf fikra sig upp á skaftið og fjölga verkefnum. Hitt er sýnilega alveg ókleift, að einn maður annist alt þetta, og þó að maður sá, sem stjórnin hefir snúið sjer til, sje hæfur læknir, er hann ekki fær um að taka það að sjer. Það er alveg rjett, sem hv. 5. landsk. (JKr) sagði, að sá, sem veitir stofnuninni forstöðu, þarf að hafa þekkingu á dýralækningum. Hafi stjórnin dregið í efa, að þekking dýralæknanna hjer á landi nægði, var henni innan handar að snúa sjer til erlendra dýralækna. Jeg get heldur ekki litið á Skúla lækni Guðjónsson sem alveg óhlutdrægan mann í þessu máli, þar sem hann á í vændum vel launaða stöðu við stofnunina, ef hún kemst á fót.

Jeg felli mig vel við ummæli hv. 5. landsk. um að fela nefnd manna að athuga þetta mál. Væri það gert, fengist nokkur trygging fyrir því, að næsta frv. um þetta efni yrði svo úr garði gert, að af því mætti vænta árangurs. Mjer sýnist stjórnin vel geta unað því að fá heimild í fjárlögum til þess að verja nokkurri fjárupphæð til að rannsaka alidýrasjúkdóma, enda ríður mest á því. Hæstv. forsrh. talaði lítið um till. hv. 5. landsk., og ræð jeg af því, að hann telji hana ófullnægjandi. En þar er jeg á öðru máli.

Hæstv. forsrh. sagði, að Skúli Guðjónsson væri allra manna færastur til að veita þessari stofnun forstöðu. (Forsrh.: Íslenskra). Jeg verð að draga þetta mjög í efa. Jeg tel að minsta kosti tvo Íslendinga færari til þess en hann, og það eru dýralæknarnir tveir, sem mesta hafa æfinguna. Skúli Guðjónsson er aðeins sjerfræðingur í einni grein. Og um hin verkefnin, sem stofnunin á að hafa með höndum, álít jeg hann eigi dómhæfan.

Hæstv. forsrh. sagði, að það væri ekkert nýtt, að stjórnin fengi í sínar hendur slíkar heimildir sem þessa, og nefndi lögin um tilbúinn áburð. Jeg skal fúslega viðurkenna, að stjórninni hefir farið framkvæmd þeirra laga vel úr hendi. En hjer er um þýðingarmeira mál að ræða og engin trygging fyrir því, að lausn þess takist jafnvel.