03.05.1929
Efri deild: 60. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2606 í B-deild Alþingistíðinda. (1357)
66. mál, hafnarlög fyrir Hafnarfjarðarkaupstað
Frsm. (Erlingur Friðjónsson):
Þetta frv. er komið frá hv. Nd. og gekk í gegnum hana breytingalaust eins og það var lagt fyrir þá hv. deild. Að sönnu hafa komið fram brtt. við frv., en þær hafa allar verið feldar. N. hefir orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. Þó flytur einn nm. brtt. í þá átt, að lækka tillag ríkissjóðs og hafa það ekki bundið sem lagaákvæði, heldur heimild fyrir ríkisstj., ef fje er fyrir hendi. Brtt. á þskj. 510, frá hv. 2. þm. S.-M., ganga í þessa átt. En jeg get sagt það fyrir hönd meiri hl. n., að hann vill ekki ganga inn á þessar breyt. Annars hefi jeg ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta, en legg til, að d. afgreiði frv. í þessu formi, sem það nú er í.