22.03.1929
Efri deild: 29. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2633 í B-deild Alþingistíðinda. (1389)

92. mál, berklavarnir

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg get ekki skilið þann rökstuðning, að ekki sje eðlilegt, þegar úrskurður samkv. berklavarnalögunum getur valdið 2000–3000 kr. árlegum útgjöldum fyrir hvern einstakan sjúkling, en árlegur kostnaður ríkissjóðs nemur nokkuð á aðra miljón króna, að jafnstórt fjárhagsatriði sem þetta sje tekið til rækilegrar athugunar og reynt til hins ítrasta að koma þar á betra skipulagi í stað þess sleifarlags og eftirlitsleysis, sem jafnan hefir átt sjer stað í þessum efnum.

Annars mætti benda á í þessu sambandi, að þó læknar okkar sjeu yfir höfuð mjög góðir og þarfir, þá eru þeir þó ekki allir jafngóðir. Hjá þeim má finna mannlega breyskleika eins og í öllum öðrum stjettum. Nokkrir læknar hafa t. d. misnotað það leyfi, sem þeir hafa lögum samkvæmt til þess að gefa áfengislyfseðla til lækninga. En sem betur fer eru þeir ekki margir. En það hefir sannast á nokkra lækna, sem hafa gert það að atvinnu sinni að selja mönnum eitur, þ. e. áfengiseitur, til drykkjar í stað þess að lækna með því. Með þessu, sem jeg hefi hjer bent á, er jeg þó alls ekki að vantreysta læknastjettinni yfir höfuð. En út frá þessu vil jeg aftur segja það, að úr því að innan stjettarinnar finnast læknar, sem orðið hafa uppvísir að því að misnota leyfið um að gefa áfengislyfseðla til lækninga, að þá geti einnig hugsast, að þeir læknar fyndust líka, sem reyndu að flytja sjúklinga sína yfir á ríkissjóðsframfæri, þó að sanna mætti, að sjúklingarnir ættu ekki að vera það. Freistingin til þessa liggur í berklavarnalögunum, sem tryggir læknunum ágæta borgun í þessu skyni. Þetta er ekkert annað en sem komið getur fyrir í öllum stjettum, af því að menn eru nú einu sinni svona gerðir, að allir eru ekki jafngóðir eða jafnvandir að virðingu sinni.

Eftirlitið í þessu efni er því ekki annað en það, að þeir menn, sem ekki eru færir um að fara með slíkt trúnaðarstarf, verða hjer eftir sviftir því að mega úrskurða um heilsuhælisvist berklasjúklinga.

Það er misskilningur, að það sje blettur á landsstj., sem hún hefir gert til betra skipulags um framkvæmd berklavarnalaganna, en það er blettur á læknastjettinni, hvernig hún tók í þá ráðstöfun fyrv. stj. um að greiða ekki nokkrum læknum reikninga, sem að hennar áliti voru ósanngjarnir í mesta máta. Þetta er að vísu ekki útkljáð enn. Og það er reginhneyksli, hvernig sumir læknar hafa tekið í viðleitni núv. stj. til að bæta úr þessum vandræðum. Læknarnir hafa ekki fallið frá kröfum sínum, svo gera má ráð fyrir, að úr því verði dómstólamál. En þessi ráðstöfun fyrv. stj. var fyrsta sporið til þess að draga eitthvað úr kostnaðinum. Næsta sporið var að semja við vissa lækna, sem einir hefðu fyrir ríkisins hönd framkvæmd berklalækninga hjer í Rvík. Og þriðja sporið er svo það, sem hjer er farið fram á með þessu frv., að stj. þurfi ekki að taka trúanlegan allan vitnisburð í þessu efni, heldur að jafnan skuli leitað úrskurðar hinna færustu manna á þessu sviði.

Jeg get ekki neitað því, að mjer þykir hálfhjákátlegt alt þetta mannúðarleysisskraf hv. þm. Snæf. í sambandi við þetta frv. En það er nú svo, að mannúðarleysis gætir víða í lífinu. Það eru t. d. ómannúðleg lífskjör, sem sjómennirnir okkar eiga við að búa á togaraflotanum, að vinna og svitna dögum saman án þess að geta farið úr fötum og fengið sjer bað. Það má segja, að það sje ómannúðlegt af útgerðarmönnunum í garð sjómanna, að hafa ekki baðklefa í hverjum einasta togara, svo að hásetarnir geti þvegið af sjer óhreinindin daglega. Það má líka segja, að það sje ómannúðlegt, að í hegningarhúsi ríkisins, sem nú mun 50 ára gamalt, skuli til skamms tíma hafa viðgengist, að salernin væru inni í sjálfum fangaklefunum. Ef farið er út í það að tala um mannúð, þá liggur nær að minnast á hana í einhverju öðru sambandi, að landið, sem borgar allan berklavarnakostnaðinn, megi ekki gera þær ráðstafanir, sem því sýnist. Að berja sjer á brjóst og gala sem hæst um mannúðarleysi slíkra ráðstafana, sem frv. nefnir, er ekkert annað en hræsni og vitleysa þeirra manna, sem sjá og finna, að settar eru skorður við því, að þeir geti haldið áfram að fjefljetta ríkissjóð með uppskrúfuðum reikningum. Þessir menn þurfa ekki að láta sjer detta í hug, að þeim takist með frekju og óskammfeilni að berja það fram, að landið sje ekki sjálfrátt um það að semja við úrvalslækna í þessu efni. Alt þetta mannúðarhjal hv. þm. Snæf. og hans nóta er eingöngu í eiginhagsmunaskyni sagt, af því þeir vita, að öðrum verður betur til þess treyst að fara með framkvæmd lækninganna. Það eru krókódílatár miðlungsmanna og þeirra, sem þar eru fyrir neðan, yfir því að geta ekki haldið áfram að moka til sín úr ríkissjóði stórum fjárhæðum fyrir störf, sem þeir voru sumpart lítt hæfir eða öllu heldur óhæfir til að vinna.