27.03.1929
Efri deild: 33. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í B-deild Alþingistíðinda. (140)
5. mál, rannsóknir í þarfir atvinnuveganna
Frsm. minni hl. (Jónas Kristjánsson):
Hv. 4. landsk. (JBald) gat þess, að 2. umr. þessa máls hefði mest snúist um það, að þrengja svið frumvarpsins. Þetta er alls ekki rjett hjá hv. þm. Það var miklu frekar talað um að víkka svið þess en þrengja. Að minsta kosti snerust tillögur mínar eingöngu í þá átt, þar sem jeg fyrst og fremst lagði til, að tekin væri upp rannsókn á innfluttum matvælum, og ennfremur, að fenginn væri sjerstakur kunnáttumaður til þess að hafa með höndum rannsókn á húsdýrasjúkdómum, t. d. dýralæknir með pathologiskri þekkingu. Mjer fanst, að slíkt starf væri betur komið hjá góðum sjerfræðingi en ef til vill hjá einhverjum ófagfróðum, þó vel væri að sjer í öðrum greinum.
Hv. 4. landsk. sneri því alveg öfugu, sem gerðist hjer í deildinni við 2. umr. þessa máls, enda mátti við því búast af honum, úr því að hann á annað borð fór að tala um það, því að hann mun hvergi hafa verið hjer nærri þegar umræðan fór fram, og er þess því ekki að vænta, að hann viti, hvað hjer gerðist.