06.04.1929
Efri deild: 38. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2653 í B-deild Alþingistíðinda. (1411)

116. mál, lækningaleyfi

Halldór Steinsson:

Jeg lít eins á þetta frv. og hv. þm. Seyðf. Fyrsta málsl. 1. gr. er ekki hægt að skilja öðruvísi en þannig, að þau fyrirmæli eigi að ná til allra lækna. Ef það á ekki að vera tilgangur frv., þá er sannarlega full ástæða til að vísa því til n. til nánari athugunar.