08.05.1929
Neðri deild: 64. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2662 í B-deild Alþingistíðinda. (1446)
125. mál, fjáraukalög 1928
Frsm. (Ingólfur Bjarnarson):
Fjvn. hefir athugað þetta frv. og hina ýmsu útgjaldaliði þess. Þá hefir hún og kynt sjer heimildir fyrir greiðslum og ýmsa liði, er ekki hafa verið nægilega skýrgreindir í aths. við frv. Leggur n. til, að frv. verði samþ. með einni breyt., er hæstv. fjmrh. hefir óskað eftir. Er hún þess efnis, að bætt verði við eftirlaunum til Friðriks Jónssonar pósts fyrir árið 1928. Síðasta Alþingi ákvað honum eftirlaun og samkv. venju hafa honum verið greidd þau fyrir 1928. Er nú leitað aukafjárveitingar fyrir því, og telur n. sjálfsagt að veita hana.
Jeg sje nú ekki ástæðu til þess að fjölyrða um hina einstöku útgjaldaliði, en vil þó fara nokkrum orðum um suma þeirra. Útgjöldin hafa alls numið 260 þús. árið 1928. Til samanburðar skal jeg geta þess, að árið 1927 voru þau 150 þús. eða um 100 þús. kr. lægri. Aftur voru útgjöld fjáraukalaganna 1926 280 þús., eða lítið eitt hærri en nú. Sjest af þessu, að á ýmsu veltur með þessi útgjöld og að þau eru mismunandi frá ári til árs.
Skal jeg þá víkja að nokkrum einstökum liðum.
Það er þá fyrst 2. gr. Er þar kostnaður við aukna toll- og löggæslu. Var bætt við nokkrum nýjum starfsmönnum, og eru þetta laun þeirra ásamt fleiru. Er gerð grein fyrir þessari starfsmannafjölgun í aths. við frv. Auk þess hefir n. fengið sundurliðaða skrá yfir þennan kostnað.
Við 3. gr. er ekkert að athuga.
En við 4. gr. vil jeg geta þess, að aðalupphæðirnar þar eru framlög til bygginga og endurbóta á ríkisskólum, og hjeraðsskólum að ákveðnum hluta. öll þessi upphæð nemur 120 þús. kr. Stærstu liðirnir eru til byggingar skóla- og Íbúðarhúsa á Hólum. Eins og kunnugt er, brann þar og þurfti því að byggja upp aftur. Er þessi upphæð það, sem greiða þurfti umfram það, er brunabótafjelagið greiddi, því sú upphæð hrökk ekki til fyrir byggingarkostnaði. — Önnur helsta upphæðin er til skólabyggingar á Laugarvatni. Eru það 38 þús. Þetta hefir áður verið veitt í fjárl. 1926 og 1927.
Til skýringar útgjöldunum við 16. gr. fjárl. skal jeg geta um 3. lið 5. gr. Hafa þar verið veittar rúmar 3 þús. kr. til endurbyggingar sjóvarnargarðs fyrir landi jarðanna Einarshafnar og Skúmsstaða. Er þetta hálfur kostnaður við verkið. Hefir undanfarin ár allvíða verið veittur af ríkinu styrkur til samskonar aðgerða. 7. liður sömu gr. er til fyrirhleðslu Þverár í Eyjafirði, 1100 kr. Er það helmingur kostnaðar. Þessi fjárveiting byggist á því, að á þessi hefir brotist úr farvegi sínum og flætt yfir engi nærliggjandi jarða, en um leið hefir hún lagst að þjóðveginum, sem liggur upp frá Eyjafjarðarbrúnni, svo að hann er í hættu vegna þessa vatns. Með það fyrir augum hefir ríkið gengist undir að greiða kostnaðinn við þetta að hálfu leyti. Þetta er ekki allur kostnaðurinn, því enn er unnið að þessu verki. En nú þykir mjer líklegt, að því verði lokið í vor, og verður þá ríkið að greiða eitthvað meira.
9. liður er til fyrirhleðslu Skálmar. Skal jeg geta þess, að ríkið hefir gengist inn á að greiða hálfan kostnað. Þessi fyrirhleðsla á að vera til varnar nokkrum bæjum í Álftaveri. Samkv. skýrslu Búnaðarfjelags Íslands er áætlaður kostnaður 3500 kr. Þetta hefir þó farið nokkuð fram úr áætlun, og hefir ríkið greitt nokkuð af þeim umframkostnaði.
12. liður er til varnar gegn vatnságangi af Kúðafljóti. Er það upplýst, að Búnaðarfjel. Íslands hefir sjeð um þessa fyrirhleðslu, sem á að verða til varnar nokkrum jörðum þar eystra, sem allar eru eign ríkissjóðs. Og með það fyrir augum hefir það orðið að ráði samkv. till. Búnaðarfjelagsins, að ríkið legði fram 3000 kr. til þessa, en Búnaðarfjel. 1000 kr.
Um 6. gr. hefi jeg ekkert sjerstakt að segja.
Þá skal jeg víkja nokkrum orðum að 7. gr. Stærsti útgjaldaliðurinn þar er til undirbúnings alþingishátíðarinnar 1930, að upphæð 49 þús. kr. N. kynti sjer eftir föngum, hvernig þessum útborgunum er háttað og fjekk nokkrar upplýsingar þar að lútandi. Skrifstofustjóra Alþingis, er var gjaldkeri nefndarinnar fram að síðastliðnu hausti, mun hafa verið ávísað 17 þús. kr., og er talið, að þær hafi farið til undirbúnings. N. hefir nú nokkuð kynt sjer þær greiðslur og komist að raun um, að þær hafa að langmestu leyti farið til þess að greiða kostnað við að laga vellina á Þingvöllum, sljetta þá, græða og girða. Þá hafa Magnúsi Kjaran, er ráðinn mun hafa verið framkvæmdastj. alþingishátíðarnefndarinnar, verið ávísaðar 12 þús. kr. til ýmislegs undirbúnings. En nefndin átti ekki kost á að kynna sjer þær greiðslur, því viðkomandi maður hefir ekki verið staddur hjer í bænum. Þá hafa og verið lagðar fram 5 þús. kr. til að verðlauna ljóðaflokka. Einnig hefir húsameistari ríkisins fengið 10 þús. kr. ávísun til þess að flytja Valhöll úr stað. Býst jeg við því, að mörgum sje kunnugt um það, að það hefir þegar verið gert. Einnig hefir konungshúsið svokallaða verið flutt. Hafa þessar 10 þús. kr. runnið til þessa og ýmislegs annars. Ennfremur hefir vegamálastjóri fengið 5000 kr. til ýmislegra vegagerða á Þingvöllum, með það fyrir augum að greiða fyrir væntanlegu hátíðahaldi.
Jeg held svo, að það sje ekki ástæða til þess að taka fleira fram um þessa liði, enda er nú orðið fáment í deildinni. Endurtek jeg svo till. fjvn., að frv. verði vísað til 3. umr. að þessari umr. lokinni.