15.05.1929
Neðri deild: 69. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2681 í B-deild Alþingistíðinda. (1483)

140. mál, lánsheimild fyrir ríkisstjórnina

Hákon Kristófersson:

1 Það sje fjarri mjer að vekja andúð gegn þessu frv.; það er ekki nema eðlileg afleiðing af því, sem þingið er búið að gera. Hinsvegar hygg jeg, að lánsupphæðin sje of lágt áætluð, og myndi tæplega nægja minna en 16–18 milj. kr. Hæstv. fjmrh. gat þess, að ýmsir liðir hefðu verið teknir með, sem stj. ætlaði sjer ekki að framkvæma, og nefndi þar sjerstaklega brúargerðir og húsagerð ríkisins. Hvað fyrri liðinn snertir, þá kemur þetta mjer nokkuð á óvart, því að jeg hefi það bygt á góðum og gildum rökum, að hæstv. stj. mundi ekki vera öll á einu máli að því er þann lið snertir. Jeg hefi góðar heimildir fyrir því, að ef þetta lán yrði tekið, mætti búast við því, að bygðar yrðu tvær brýr í mínu kjördæmi, sem jeg flutti till. um við umr. fjárl. hjer í hv. deild, en meiri hl. hv. deildar kom af sjer með þeim drengskap, sem á því máli var. Og það tel jeg miklu betur farið, að verja þessu láni til nauðsynlegra framkvæmda, í stað þess að ríkið fari að gefa sig að ýmsum „spekulationum“, hvort sem það er í síld eða öðru.

Jeg mun síst átelja hæstv. stj., þótt hún verði láninu til óhjákvæmilegra framkvæmda, svo sem brúargerða. Það er áreiðanlega eins mikill liður í samgöngubótum og kaup á nýju strandferðaskipi.

Jeg vona, að hæstv. ráðh. skilji ekki þessi fáu orð mín þannig, að jeg sje að stefna neinum ásökunarskeytum til hans, en þessi yfirlýsing hæstv. ráðh. kom mjer mjög á óvart.

*Ræðuhandr. óyfirlesið.