06.05.1929
Neðri deild: 62. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2712 í B-deild Alþingistíðinda. (1525)

19. mál, landsreikningar 1927

Jörundur Brynjólfsson:

Jeg er sammála hv. 2. þm. Rang. um færsluna á reikningi landhelgissjóðs. Mjer finst óviðfeldið að sjá þetta fært á reikning landhelgissjóðs og sýnist rjettara að færa á sjerstakan reikning allan risnukostnað ríkissjóðs, og ætti helst að vera sjerstakur liður fyrir þetta í fjárl. Með því fæst betra yfirlit yfir þennan kostnað. Jeg er yfirskoðunarmönnunum sammála um þetta, eins og jeg hefi áður verið þegar þessi aths. hefir komið fram. Þingið hefir hingað til daufheyrst við þessu, og meðan það gerir það, má telja víst, að þetta verður fært á sama hátt og áður.

Mig langar til að gera fyrirspurn til hv. 2. þm. Rang. viðvíkjandi áfengisversluninni. Svo er mál með vexti, að árið 1525 var skuld hjá vínversluninni hjer í Reykjavík, en á þessum reikningi sjest ekki, hvað mikið er enn útistandandi af þeirri skuld. Langar mig til að fá upplýsingar um þetta.