06.05.1929
Neðri deild: 62. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2713 í B-deild Alþingistíðinda. (1528)
19. mál, landsreikningar 1927
Jörundur Brynjólfsson:
Jeg er undrandi yfir því, að yfirskoðunarmennirnir skyldu ekki hafa gert aths. við þessa skuld, því að hún virðist hafa staðið í stað, óbreytt eins og hún var 1925. Jeg fæ því ekki betur sjeð en að full ástæða sje til að athuga, hve mikið af henni muni hægt að fá inn.