06.05.1929
Neðri deild: 62. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2714 í B-deild Alþingistíðinda. (1530)

19. mál, landsreikningar 1927

Jörundur Brynjólfsson:

Jeg vil beina þeirri fyrirspurn til hv. 2. þm. Rang., hvort hann hafi sjeð skrána yfir þessa skuld. (GunnS: Já). Og telur hv. þm. hana ófáanlega? (GunnS: Já). Jeg vil þá upplýsa það, að árið 1925, þegar jeg var yfirskoðunarmaður landsreikninganna, fengu yfirskoðunarmenn ekki að sjá þessa skrái svo að þá voru ekki tök á að athuga hana. Vænti jeg þess, að hæstv. stj. taki það til athugunar, hvort þessi skuld, sem nam 9000 kr. fyrir árið 1925, muni nú tapaður peningur.