26.04.1929
Neðri deild: 54. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í B-deild Alþingistíðinda. (155)

5. mál, rannsóknir í þarfir atvinnuveganna

Hákon Kristófersson:

Það var ekki meining mín með þeim fáu orðum, sem jeg sagði áðan, að fara að kveikja hjer neinn eld. Jeg sagði ekki annað en álit mitt um þetta „humbugs“-mál og jeg hjelt sem sagt, að jeg þyrfti ekki að fara til hæstv. forsrh. til þess að fá leyfi til þess. En að sjálfsögðu bið jeg velvirðingar á því, hafi jeg á einhvern hátt hagað orðum mínum svo, að ekki hafi velsæmi í verið, þó jeg hinsvegar finni ekki sök hjá mjer í því efni, þar sem líka jeg var svo sanngjarn að óska þess, að tilgátur mínar um það, að hjer væri um tildur eitt að ræða, reyndust ekki á rökum bygðar. Annars held jeg, að það hafi verið öfugt hjá vini mínum, hæstv. forsrh., að norðanáttin hafi haft áhrif á skap mitt í dag. Mjer finst miklu frekar, að hún hafi gert uppþot í hans eigin skapi.

Hvað snertir þá samlíkingu hæstv. ráðh., að orsakir bráðapestarinnar stæðu í sambandi við miður heppilega samansett bóluefni, þá verð jeg að segja það, að mjer finst hún vægast sagt óframbærileg, og það mega þeir góðu menn vita, sem koma til með að fást við þessar rannsóknir, að það verður aldrei aðalatriðið, hvort orsakir þessarar pestar finnist, heldur hitt, að hægt verði að finna meðul til þess að lækna hana. Hvað fjöruskjögrið snertir, þá hefi jeg þá reynslu, að eina ráðið gegn því sje að fara vel með ærnar um meðgöngutímann og beita þeim ekki í fjöru án þess að þeim sje gefið sæmilega eða þær hafi kjarngóða beit jafnframt fjörubeitinni, sem helst ætti aldrei að vera meiri en helmingur af fóðrinu.

Eins og jeg tók fram áðan, þá hefi jeg enga trú á því, að frv. þetta sje nokkuð betri lausn á þessu máli heldur en ef nýjum kröftum væri aukið við þær stofnanir, sem til eru fyrir á þessum sviðum. Jeg býst nú við, hvað svo sem um búnaðarþingið má segja að öðru leyti, þá hafi það fundið til þess, hve stórkostlegu tjóni þessar skæðu sóttir í búpeningnum hafa þegar valdið bændum landsins, og því borið fram óskir um, að úr þessu yrði reynt að bæta. En eins og kunnugt er, hefir þessi samkunda engin rök fært fram með því, að úr þessari plágu verði bætt, enda þótt slík stofnun, sem hjer er um að ræða, verði sett á stofn. Að jeg hafi verið að bregða hæstv. ráðherra um, að aðaltilgangur hans með frv. þessu væri sá, að stofna nýtt embætti, er alls ekki rjett. Hitt dreg jeg ekki í land, að það muni vera ákveðinn maður, sem þessi starfi er ætlaður, og það sje ekki óverulegasta ástæðan fyrir því, að þetta frv. er fram komið, því nú virðast þeir tímar yfirstandandi, að meiri hl. og hæstv. stjórn búi til stöður einungis vegna þess, að ýmsir af vinum hennar þurfa þeirra með. Jeg skal svo endurtaka það, sem jeg sagði áðan, að það hefir aldrei verið meining mín, að frv. þetta myndi ekki ná fram að ganga. En jeg vildi láta álit mitt í ljós, ef vera kynni, að seinni tíminn sýndi, að reynslan yrði í samræmi við skoðun mína.

Eins og jeg áður sagði, þá er jeg hræddur um, að reynslan sýni annað en það, að mitt álit á þessu sje rangt. Viðvíkjandi hæstv. atvmrh. vil jeg segja það, að óskandi væri, að ánægja sú, sem nú kemur fram hjá honum yfir þessu fóstri sínu, kulni aldrei í norðanáttinni, sem hann var að tala um áðan.