16.04.1929
Neðri deild: 46. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2720 í B-deild Alþingistíðinda. (1553)

111. mál, brunamál

Frsm. (Halldór Stefánsson):

Út af fyrirspurnum hv. 1. þm. Skagf. skal jeg geta þess, að ekki er gert ráð fyrir, að eftirlitið nái nema til þeirra kaupstaða og bæja, sem eru tryggingarskyldir í Brunabótafjelagi Íslands, enda mundi eftirlit um alt land kosta miklu meira en hjer er gert ráð fyrir.

Þá þótti hv. þm. það eðlilegast, að Brunabótafjelagið greiddi þennan kostnað að öllu leyti. Mjer finst þetta ekki rjett hjá hv. þm. Í fyrsta lagi á ríkið nokkuð í áhættu, þar sem það hefir gefið ábyrgð fyrir 800 þús. kr. í öðru lagi lýtur þetta ekki aðeins að því að tryggja hagsmuni Brunabótafjelagsins, heldur miðar eftirlitið að því að tryggja eignir, líf og limi borgaranna; því að ef stórbruni verður í kaupstöðunum, getur margt slíkt hent. Virðist því eðlilegt, að ríkið taki þátt í kostnaðinum.

Í þriðja lagi er þess að geta, að það er eðlilegt og hagkvæmt, að ríkið og Brunabótafjelagið geti haft íhlutun og samstarf um þetta eftirlit, og þá er rjettlátast, að báðir aðiljar beri kostnaðinn. Það hefir verið um þetta rætt við stj., og hefir hún fallist á þessa tilhögun. En þótt jeg hafi sagt þetta, tel jeg það ekki mikið atriði, hvort Brunabótafjelagið greiðir eitt kostnaðinn eða ekki, en jeg hefi stungið upp á því, að kostnaðurinn skiftist þannig, af því að mjer fanst það eðlilegt og rjett.