16.04.1929
Neðri deild: 46. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2722 í B-deild Alþingistíðinda. (1555)

111. mál, brunamál

Frsm. (Halldór Stefánsson):

Jeg sje ekki ástæðu til þess að fara að ræða þetta nánar á milli okkar, og mun jeg ekki endurtaka þær ástæður, er jeg hefi fram fært skoðun minni til stuðnings. Hinsvegar mun jeg alls ekki taka það illa upp, þótt hv. þm. kunni að finnast ástæða til þess að bera fram brtt. um þetta atriði, og getum við á milli umr. rætt þetta nánar.