02.05.1929
Efri deild: 59. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2742 í B-deild Alþingistíðinda. (1584)

115. mál, íbúð í kjöllurum

Frsm. (Jóhannes Jóhannesson):

Eins og nál. á þskj. 457 ber með sjer, þá hefir allshn. ekki getað orðið samferða í þessu máli að öllu leyti. Hv. 4. landsk. hefir skrifað undir nál. með fyrirvara, sem felst í því, að hann vill ganga nokkuð lengra í þeim umbótum, sem frv. fjallar um, heldur en bæði frv. og meiri hl. allshn. telur fært að fara að svo stöddu. — öll var því n. sammála um, að frv. yrði til bóta, ef að lögum verður gert, og að það mundi verða til þess smátt og smátt að útrýma slæmum íbúðum, sem óneitanlega eru til. Að vísu eru til heilbrigðisnefndir, en það er hvorttveggja, að vald þeirra hefir verið lítið, enda hefir því sennilega verið slælega beitt. Ákvæði þessa frv. eiga nú að taka til allra kauptúna, sem hafa yfir 100 íbúa, og hyggur n., að frv. muni verða til bóta og fjelst því á það. Ástæðan fyrir því, að við 2 nm. gátum ekki fylgt form. okkar í því að ganga lengra, eða eins og brtt. hans á þskj. 459 bera með sjer, var sú, að við óttuðumst það, að það mundi valda hækkun á húsaleigu að miklum mun, sjerstaklega hjer í Reykjavík. Við þorðum því ekki að ganga lengra, þótt við hinsvegar teljum æskilegt, að fólk búi sem best, bæði af heilbrigðislegum og menningarlegum ástæðum. Okkur fanst því ekki fært að ganga lengra í þessu en frv. gerir og fjellumst því á að leggja til, að það gangi fram.

Við höfum leyft okkur að koma fram með 6 brtt. við frv., en af þeim eru þó ekki nema tvær, sem verulegu máli skifta. Hitt eru engar efnisbreyt. Við leggjum til, að í stað þess að nota orðið „jarðhús“ verði notað orðið „kjallari“. Kjallari er orð, sem búið er að fá hefð í málinu, og orðið jarðhús er notað í annari merkingu. Orðið kjallari er orðið fast í málinu, og sje jeg því ekki, að neitt sje á móti því að taka það upp Í lagamálið.

Við viljum bæta þeim ákvæðum inn í 1. gr., að gluggar megi ekki vera neðar en 25 cm. frá jörðu, svo að trygt sje, að vatn renni ekki inn um þá og hægara sje að opna þá, þó að snjór sje. Er þetta gert í samráði við hv. flm. frv., eins og reyndar þær aðrar breyt., sem við leggjum til, að gerðar verði á frv.

Frv. gerir ráð fyrir, að forgarður, ekki mjórri en 6 m., greini húsið frá götunni, ef gluggar á íbúðarherbergjum kjallaraíbúðar vita út að götu. Okkur fanst varhugavert að ganga eins langt í þessu efni og frv. gerir, vegna þess að þá verða lóðir að vera mjög stórar og þar af leiðandi dýrar, en við teljum það til mikilla bóta, ef 3 m. eru frá götu eða gangstjett.

Jeg sje ekki ástæðu til þess að fara um þetta fleiri orðum, en leyfi mjer fyrir hönd allshn. að ráðleggja hv. deild að samþ. frv. með brtt. á þskj. 457.