02.05.1929
Efri deild: 59. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2743 í B-deild Alþingistíðinda. (1585)

115. mál, íbúð í kjöllurum

Jón Baldvinsson:

Það er stigmunur á afstöðu minni og hv. meiri hl. allshn. Jeg vil ganga lengra í að útrýma kjallaraíbúðunum en hv. meiri hl. n. og banna þær með öllu. Eftir svo sem 20 ár verður Reykjavík helmingi stærri en hún er nú, og þá hefir íbúðarhúsum hjer fjölgað um helming, og ef leyfilegt verður að hafa kjallaraíbúðir, er ekki vafi á, að haldið verður áfram að byggja þær, og þá verður allmikill hluti fólksins í kjallaraíbúðum. En kjallaraíbúðir verða aldrei góðar, jafnvel þótt sólarmegin sjeu, vegna sagga, kulda og þeirra óþæginda, sem af því stafa, að þær verður að grafa að einhverju leyti í jörð niður. Jeg vil því láta banna að byggja kjallaraíbúðir hjeðan í frá, og að því lúta brtt. mínar á þskj. 459. — 1. brtt. gengur út á það, eins og jeg áður sagði, að bannað verði að taka kjallara til íbúðar í húsum, sem bygð verða hjer eftir, og að eigi megi gera kjallaraíbúðir í húsum, sem þegar hafa verið bygð. En síðari brtt. er þess efnis, að þeim kjallaraíbúðum, sem nú tíðkast, skuli fækka eftir ráðstöfunum bæjareða sveitarstjórna, þannig að þær hverfi með öllu á næstu 20 árum. Hjer í Reykjavík munu vera um 800 kjallaraíbúðir, svo að samkv. þessu ættu 40 að leggjast niður á ári. Jeg þykist vita, að sumir muni segja, að þetta sje aðgangshart fyrir húseigendur og fólk muni vegna þessara ráðstafana eiga vont með að útvega sjer íbúðir, en þessu er til að svara, að því marki verður aldrei náð með neinni linkind að útrýma kjallaraíbúðunum, heldur verður að gera strangar ráðstafanir til þess að halda í horfinu, því að menn virðast hafa alveg óvenjulega tilhneigingu til þess að láta gera kjallaraíbúðir, og hygg jeg þó, að slíkt sje ekki til neinna hagsbóta. Annars er svo um kjallaraíbúðir hjer í bæ, að fjöldinn af þeim var „innrjettaður“ á stríðstímunum, þegar húsnæðisvandræðin voru mest.

Það er rjett, að heilbrigðisstjórn hefir vald til að ákveða, að ekki skuli nota kjallaraíbúðir, en það vald er veikt með undanþágumöguleikunum, auk þess sem hlutaðeigandi bæjar- eða hreppsfjelög munu alltrauð til að skapa sjer erfiðleika með því að láta fólk út á götuna og þurfa svo að sjá því fyrir betri íbúðum á eftir. Ef mínar till. ná fram að ganga, er ekkert undanfæri í þessu efni, og svo verður að vera.

Jeg veit, að það eru fleiri íbúðir vondar en kjallaraíbúðir, t. d. uppi á háalofti í ýmsum húsum, en þó mun mest óhollustan af kjallaraíbúðunum, vegna þess mikla sagga, sem þeim fylgir.

Jeg vil láta setja ákvæði um það í þetta frv., hver eigi að skera úr, ef ágreiningur rís út af því, hvað eigi að teljast kjallaraíbúð. Vil jeg, að stjórnarráðið hafi þar úrskurðarvaldið.

Þá vil jeg breyta fyrirsögn frv., þannig að í stað orðsins „jarðhús“ komi: kjallari. Mjer finst orðið jarðhús merkja alt annað en hjer er átt við.

Loks ætlast jeg til þess, að l. þessi gangi í gildi um næstu áramót og að árið 1930 fari fram fyrsti útdráttur kjallaraíbúða, frá fardögum að telja.

Ein af brtt. hv. meiri hl. allshn. er þess efnis, að 3 metra forgarður skuli greina hús frá götu, í stað 6 metra, eins og frv. gerir ráð fyrir. Jeg tel þetta til bóta, þó að jeg þykist vita, að erfitt verði að framkvæma það, því að víða Í kaupstöðum mun búið að ákveða breidd gatna og miðað við það, að hús sjeu bygð fast að gangstjett. Í slíkum húsum kemur auðvitað ekki til greina að hafa kjallaraíbúðir. Jeg tel þetta ákvæði því til bóta, þar sem það að þessu leyti takmarkar kjallaraíbúðir.

Jeg sje ekki ástæðu til þess að hafa þessi orð fleiri, því að jeg fór allrækilega út í þetta frv. við 1. umr., og þær brtt., sem jeg flyt, eru í samræmi við það, sem jeg sagði þá.