07.05.1929
Efri deild: 63. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2769 í B-deild Alþingistíðinda. (1606)
115. mál, íbúð í kjöllurum
Jón Baldvinsson:
Þegar frv. þetta var til 2. umr., varð það fyrir allmiklum breyt., og var breytt heiti þess meðal annars, þannig að frv. hjeti ekki frv. til l. um jarðhús, heldur er tekið upp það orð, sem lengi er búið að nota um þessar íbúðir, sem sje kjallaranafnið. Þannig er í 1. gr. frv. talað um kjallara, en hvergi nefnd jarðhús, en eftir standa þá í 2. gr. frv. leifar þessa heitis í svigum aftan við kjallaranafnið. Þetta vil jeg láta fella úr frv. og hefi gert brtt. um það á þskj. 545. Það er aðeins til þess að samræma, því að þetta orð kemur eins og skollinn úr sauðarleggnum í 2. gr., og enginn veit, hvað það táknar eins og það er þarna inn komið. Það hefði þá átt að vera í fyrsta skifti, sem það gat komið fyrir í frv. (JóhJóh: Það var það líka). Já, en þegar hinar breyt. voru gerðar, var ekki gætt að því að samræma þetta.
Að því leyti sem hv. 2. landsk. fór almennum orðum um frv. nú og brtt. þær, sem samþ. voru, skal jeg svara því. Það er ekki ákaflega mikill munur á frv. nú og því, sem hefir vakað fyrir hv. flm. Bæði við, sem brtt. flytjum, og hv. flm. frv. erum sammála um þetta, ýmist að takmarka eða banna kjallaraíbúðir. Við höfum aðeins með brtt. gengið ofurlítið lengra að banna íbúðir í kjöllurum í framtíðinni. Um hitt, hvernig skipa eigi um þær íbúðir, sem fyrir eru, má segja, að það sje fyrirkomulagsatriði. Hvort þær hverfa á 10, 20 eða 30 árum, er mjer ekkert sjerstakt kappsmál. Takmarkið næst hvort sem er bráðlega með þessum lögum.
Hv. 2. landsk. talaði um undanþáguveilurnar í frv. En það var að mínu viti nauðsynlegt að leyfa að nota kjallaraíbúðir í húsum þeim, sem fyrir eru, þangað til bannað væri að búa í þeim samkv. fyrirmælum um það efni, þar sem bæjarstj. eiga að skrifa upp vissan hluta íbúða á ári og banna að nota þær. Það verða vitanlega verstu íbúðirnar, og þær hverfa smátt og smátt, nema þær, sem fullnægja fyrirmælum 2. gr. Þær geta haldist lengi, eftir því hvað þær eru góðar og ef ekki hefir verið nægilega bygt til þess að fólk hætti við kjallaraíbúðir. Það er svo um marga, að þeim þykir lakara og heldur til niðrunar að búa Í kjöllurum. En þeir byggingarfróðu segja — meðal annara hv. 3. landsk. við 2. umr. —, að það yrði enginn bagi þeim, sem byggja, ef þeir vissu það í upphafi, að þeir fengju ekki að láta gera íbúð í kjallara.
Jeg álít þá, að frv. komi að þeim fullu notum, sem hv. flm. ætlast til, þó að þeir treystu sjer ekki í upphafi til að fara svo langt sem nú er gert í 1. gr. frv. Undanþágur eru ekki meiri í frv. en voru. (IHB: Ekki sambærilegt!). Undanþágur eru ekki meiri en svo, að hitt vegur á móti, að bannað er að byggja kjallaraíbúðir og gera slíkar íbúðir í þeim húsum, sem fyrir eru.
Og fyrir framtíðina er þessi tilhögun miklu betri. Hv. flm. sagði, að ef þessi brtt. mín yrði samþ., yrði lækningin ekki eins stórfeld og hún ætti að vera. En jeg verð nú samt sem áður að líta svo á, að lækningin verði alveg nógu áhrifamikil, þar sem bannað er að byggja ný hús með kjallaraíbúðum og þeir gömlu kjallarar eiga að vera horfnir eftir 20 ár. Og þær kjallaraíbúðir, er þá yrðu ef til vill eftir, eru einmitt þær sem hv. flm. er mjer sammála um, að ekkert geri til þó verði eftir.