29.04.1929
Efri deild: 56. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í B-deild Alþingistíðinda. (164)

5. mál, rannsóknir í þarfir atvinnuveganna

Frsm. minni hl. (Jónas Kristjánsson):

Eins og hv. þdm. muna, þá var afstaða mín til þessa frv. sú, þegar það var hjer til meðferðar í deildinni, að jeg lagði til, að því væri vísað til stjórnarinnar, af því það skorti nauðsynlegan undirbúning, svo það kæmi að fullum notum. En sú till. mín var feld, Nú hefir frv. verið breytt í hv. Nd., og tel jeg það til bóta, þó að lítið sje. Samkvæmt þeim breytingum á atvmrh. að ákveða, í hversu mikið verður ráðist og hversu mikið fje verður lagt til þessarar stofnunar, svo að hann ber þá sjálfur persónulega ábyrgð á þeirri framkvæmd. Nú eru forstjóra stofnunarinnar ákveðin allsæmileg laun, og tel jeg það rjett, að starfið sje vel launað. Jeg get þá lýst því yfir, að jeg mun fylgja frv., þó að jeg hefði kosið, að gerðar væru meiri umbætur á því.