23.02.1929
Neðri deild: 6. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2783 í B-deild Alþingistíðinda. (1646)

24. mál, héraðsskólar

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Með þessu frv. er ætlast til, að komið verði skipulagi á nokkra unglingaskóla í sveit, sem áður hafa verið styrktir í fjárl., t. d. á Núpi, Hvítárbakka, Laugum og Laugarvatni, þannig að aðstandendur þessara skóla viti, á hvern hátt þjóðfjelagið vill styrkja þá, og hinsvegar leggi þeir á sig nokkrar byrðar, skólunum til gagns.

Það hefir tekið heilan mannsaldur hjer á Íslandi að finna það form, sem heppilegt er fyrir gagnfræðaskóla Í sveit. Á síðustu árum hafa umbætur í þessu efni orðið mestar, svo að nú er það álit skólamanna, að með þeirri reynslu, sem fengin er, sjái menn nokkurn veginn, hvernig þessir skólar eigi að vera, svo að þeir fullnægi kröfum æskulýðsins. Einn af merkustu læknum landsins, Steingrímur Matthíasson, hefir sagt um einn af hjeraðsskólunum — einkum með tilliti til vinnukenslunnar og íþróttakenslunnar —, að nú sæi hann, hvernig gagnfræðaskólar ættu að vera á Íslandi.

Í þessu frv. er gert ráð fyrir, að skólar þeir, sem þar eru nefndir, svo og fleiri skólar, sem fyrir áhuga hjeraðsbúa yrði hrundið áfram, fái úr landssjóði vissan styrk í hlutfalli við nemendatölu. Það er þegar á nokkrum stöðum verið að undirbúa stofnun hjeraðsskóla, og mundu ákvæði þessa frv. að sjálfsögðu ná til þeirra, ef það yrði samþ.

Það má sjálfsagt færa einhver rök gegn þessu máli, eins og t. d. það, að hætt sje við, að kennarar mundu draga að sjer nemendur með „agitationum“, frekar en að það væru kostir skólans, sem drægju nemendur að skólanum. En það er margt, sem mælir með því, að skólarnir fái styrk eftir því, hvernig þeir eru sóttir. Reynslan yrði áreiðanlega sú, að ljelegur skóli gæti ekki haldið sínum vinsældum. Þá mundi landssjóðsstyrkurinn minka og kennararnir yrðu að fara. Það er því einskonar hlutur, sem kennarinn er upp á, líkt og á smábátunum. Það verður sagt við kennarana: „Ef þið stjórnið ekki skólanum á þann hátt, að nemendurnir vilji læra hjá ykkur, þá verðið þið að fara“.

Það er annað nýmæli í þessu frv. Það er sem sje gert ráð fyrir því, að gamlir nemendur standi saman og myndi fastan fjelagsskap til þess að styrkja skólana. Einnig er ætlast til, að þessi hópur gamalla nemenda sje kjósendur að meiri hluta skólanefndar. Ef stofnendur þessara skóla og lærisveinar bera ekki hlýjan hug til þeirra, þá er ekki von, að aðrir geri það. Jeg get nefnt það til dæmis, að í Borgarfirði og Mýrasýslu hafa 5 bændur haldið uppi Hvítárbakkaskólanum, og þeir hafa staðið í skuldum fyrir eigninni, sem hafa numið upp undir 50 þús. kr. Jeg hygg, að það sje reglulegur ávinningur fyrir þjóðfjelagið, að geta notað sjer slíkan áhuga aðstandendanna. En ef einhver skóli er svo daufur, að nemendur vilja ekkert fyrir hann gera, þá eru ákvæði í frv. um það, hvernig honum skuli stjórnað.

Sem dæmi upp á það, hversu hjer er reynt að stilla í hóf fjárframlögum úr landssjóði, skal jeg geta þess, að frv. kveður svo á, að 5000 krónur skuli veittar á hvern bekk árlega. Ríkisskólar fá miklu meiri styrk en þetta. Kostnaður sá, sem ríkið ber vegna þeirra, er frá 7–11 þús. kr. á ári fyrir hvern skóla. Enda hefir það mætt nokkrum andmælum frá sumum aðstandendum hjeraðsskólanna, að 8. gr. frv. skuli ekki gera ráð fyrir meiri styrk en þetta. En það er gert af ásettu ráði, í trausti þess, að hjeraðsskólarnir reynist ódýrari en ríkisskólarnir. Þar sem hverahiti er, sparast til dæmis eldiviður. Auk þess er ætlast til, að gamlir nemendur veiti skólanum nokkurn stuðning.