02.05.1929
Efri deild: 59. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2831 í B-deild Alþingistíðinda. (1682)
24. mál, héraðsskólar
Frsm. (Jón Jónsson):
Eins og nál. á þskj. 477 ber með sjer, hefir n. orðið sammála um, að frv. þetta næði fram að ganga með örlitlum breyt. Það má segja, að þessir hjeraðsskólar sjeu nýgróður, þar eð flestir hafa risið upp á síðustu 10 árum, nema skólinn á Núpi í Dýrafirði, sem er orðinn nokkuð gamall. Skólar þessir þykja góðir og svara vel til þeirra krafna, er menn gera til þeirra, og því þykir rjett að setja nokkrar reglur um starfssvið þeirra. N. leggur því til, að frv. þetta verði samþ. með nokkrum smábreyt. 1. brtt. er við 10. gr. í Nd. hafði sú breyt. komist inn í frv., að námsskeið, sem haldin væru við þessa skóla, gætu notið styrks af opinberu fje, þótt þau stæðu ekki nema vikutíma. í frv. voru þau skilyrði sett fyrir styrkveitingu, að námsskeiðin stæðu í 6 vikur, og n. lítur svo á, að svo skuli það vera, því að styttri námsskeið bera varla þann árangur, að þau sjeu verð styrks. Þá komust þau ákvæði inn í 12. gr. í Nd., að skólinn skyldi halda óskertum styrk, þótt nemendum fækkaði um 2 ára skeið, en eins og hv. þdm. mun kunnugt, skal styrkurinn miðast við nemendafjölda. Þetta áleit n. rjett að nokkru leyti, ef um smávægilega fækkun væri að ræða, og eins þótt stór fækkun sje um stundarsakir. Hún leggur því til, að ef fækkunin nemur 1/3 af meðaltali þriggja næstu ára á undan og skólanum sje ekki um að kenna, þá skuli heimilað að greiða fullan styrk úr ríkissjóði, en sá styrkur skuli gilda í 2 ár. — 3. brtt. er við 13. gr. og er hún viðvíkjandi kosningu endurskoðenda. Það hafði láðst í Nd. að samrýma það við skólanefndarkosningar, en að því miðar þessi brtt. n. Eins og menn sjá, eru þessar breyt. ekki stórvægilegar, en hinsvegar nauðsynlegar til þess, að frv. geti orðið að lögum. N. leggur því til, að frv. verði samþ. með þessum breyt.