11.04.1929
Efri deild: 42. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2835 í B-deild Alþingistíðinda. (1696)

122. mál, Menningarsjóður

Flm. (Jón Jónsson):

Frv. þetta er þannig vaxið, að ekki þarf að fara um það mörgum orðum. Það er flutt að beiðni form. Mentamálaráðsins, Sigurðar Nordals, og í samráði við hæstv. dómsmrh. Fer frv. fram á breyt. á 5. gr. laga þeirra um Menningarsjóð, er samþ. voru hjer á Alþingi í fyrra. Þar er ákveðið, að sjerstök útgáfunefnd stýri bókaútgáfu sjóðsins. Eiga sæti í þeirri nefnd prófessorar háskólans í sögu og íslenskum bókmentum og auk þeirra íslenskukennarinn við kennaraskólann. En í 5. gr. þessara laga hefir af vangá komist inn það ákvæði í fyrra, að sjálft ráði Mentamálaráðið vali bóka þeirra, er útgáfunefndin gefur úr. Meiri hl. Mentamálaráðsins telur tilhögun þessa óheppilega, og því er þetta frv. fram komið. Vona jeg, að hv. deild leyfi frv. að ganga til 2. umr. og mentmn., sem þá getur leitað fullnaðarumsagnar Mentamálaráðsins.