16.05.1929
Neðri deild: 70. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2837 í B-deild Alþingistíðinda. (1707)

122. mál, Menningarsjóður

Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson):

Nál. meiri hl. er það ítarlegt, að ítarlegrar framsögu er ekki þörf.

Sannleikurinn er sá, að það hefir aldrei verið samþ. af Alþingi, að Mentamálaráðið ætti að hafa afskifti af bókavali stjórnardeildar Menningarsjóðs. Jeg minnist þess, að á milli 2. og 3. umr. um frv. um Menningarsjóð á síðasta þingi kom til mín maður af skrifstofunni og sagði, að það þyrfti að leiðrjetta orðið „nefnd“ á einum stað í frv. og breyta því í Mentamálaráð. Jeg svaraði því, að ef þetta hefði gleymst, þá væri sjálfsagt að leiðrjetta það Í skrifstofunni, en svo kemur það á daginn, að skrifstofumaðurinn hafði ekki rjett fyrir sjer um þetta. Með orðinu nefnd á þessum stað var ekki átt við Mentamálaráðið, heldur við stjórn útgáfudeildar Menningarsjóðs. Þetta sjest skýrt af skjalaparti þingtíðindanna, og það, sem aldrei hefir verið samþ. af þinginu, getur ekki verið lög og virðist því rjettast að afgreiða það frv., sem nú er til umr., með rökstuddri dagskrá, þar sem hjer er aðeins um vangá að ræða. Frv. er óþarft að því Leyti sem ætlast er til að fá stjórn útgáfudeildar Menningarsjóðs meiri ráð í hendur yfir bókaútgáfunni heldur en virðist ætlast til í lögunum. Spurningin er aðeins það, hvort prentarar og skrifstofumenn eiga að hafa löggjafarvaldið, eða hvort Alþingi sjálft á að hafa það.