16.05.1929
Neðri deild: 70. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2848 í B-deild Alþingistíðinda. (1715)
122. mál, Menningarsjóður
Frsm. minni hl. (Magnús Jónsson) :
* Mjer finst það satt að segja hótfyndni að heimta lagabreyt. til þess að leiðrjetta það, sem er hrein og bein prentvilla í lögum. Enda mundi það æra óstöðugan að tína upp allar prentvillur, sem fyrir kunna að koma í lögum.
Þegar búnaðarbankinn var hjer til umr., þá lýsti jeg því yfir frá sæti mínu, að jeg teldi mjög vafasamt, hvort það væri löglegt að leiðrjetta þá villu, sem þar var um að ræða, í próförk. í upphafi 25. gr. þingsk. stendur, að ef deildin breyti frv. í smáu eða stóru, þá sendi forseti það aftur til hinnar deildarinnar. Virðist mjer þetta svo augljóst, að um það þurfi ekki að deila.
Aftur á móti er í þessu máli, sem fyrir liggur, beinlínis um efnisbreyt.-atriði að ræða, og um það eitt deilt. Það er öllum vitanlegt, að það gekk atkvgr. um þetta sama atriði á þinginu í fyrra og var samþ., en svo koma lögin, og þá eru það önnur stjórnarvöld, sem ráða, en þingið hafði ætlast til. Nú er ákaflega vont að sjá, hvað efnisbreyt. þarf að vera mikil til þess að breyta þurfi með lögum. Það hefir komið fyrir áður, að villa slæddist inn í lög af vangá, og varð að leiðrjetta hana með lögum.
Hv. frsm. meiri hl. sagðist vilja, að þm. rjeðu, hvernig lögin væru úr garði gerð. En vilji þm. ræður engu nema hann komi fram á ákveðinn og formlegan hátt. Þm. ráða engu nema þegar þeir eru á fundi og undir þingsköpum. Með afgr. þeirri, sem hv. meiri hl. vill hafa á málinu, er um formgalla að ræða, sem ekki kemur hjer að neinu gagni.
Ræðuhandr. óyfirlesið.