18.05.1929
Efri deild: 74. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2857 í B-deild Alþingistíðinda. (1729)

122. mál, Menningarsjóður

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg þarf ekki að bæta nema litlu við það, sem hv. 6. landsk. sagði um þetta mál. Jeg er á engan hátt að hrekja það, að sumir muni hugsa svipað eins og virðist vaka fyrir hv. 2. landsk. og að það geti verið alveg eins rjett.

Það má segja, að það væri ein leið til að byggja þetta fyrirtæki þannig, að þótt stjórn náttúrufræðisjóðsins og stjórn útgáfudeildar ynnu sjálfstætt, þá væru þær aðeins undirstjórnir, en aðalstjórn sjóðsins hefði eftirlit með þeirra verkum. En eins og hv. 2. landsk. tók fram, var frv. ekki bygt þannig, heldur svo, að það væru þrír aðalvegir til að nota þessa peninga. Ein leiðin væri að nota þá til kaupa á listaverkum; hana hefði aðalstjórn sjóðsins með höndum, auk allmargra annara erinda, sem stjórn Menningarsjóðs hefir með höndum, og sem verða sennilega aukin áður en lýkur. T. d. hefir Alþingi ákveðið í vetur að veita nokkra fjárupphæð til ýmsra námsmanna, sem Mentamálaráðið á að úthluta, til þess að Alþingi þurfi ekki að gera það með meiri eða minni handahófsatkvgr., eða að landsstj. þurfi að skifta sjer nokkuð af því. Það er þess vegna víst, ef ekkert óheppilegt kemur fyrir með Mentamálaráðið, að það verður föst og sterk stofnun, með miklum og sennilega vaxandi viðfangsefnum, þótt það skipulag haldist, sem hugsað var upphaflega, að þær tvær deildir, sem hvor hafa til umráða þriðjung þess fjár, sem inn kemur, starfi óháðar, hvor í sínu verkefni.

Til þess að gera það ljósara, að þessi breyt., sem varð á frv. í fyrra, komst inn af mistökum, vil jeg benda á það, að ef átt hefði að leggja stjórn útgáfustarfsins, sem er í höndum þriggja sjálfkjörinna embættismanna, undir yfirráð Mentamálaráðsins, þá hefði líká átt að leggja stjórn náttúrufræðisjóðsins undir það. En það var ekki gert, og það er af því, að þar er haldið frumhugsun frv. En aftur á móti mun þessi stefna eitthvað hafa komist inn við nafnbreytinguna.

Jeg geri enga tilraun til að afsanna það, sem þeir hv. 2. og 3. landsk. hafa sagt, að það mætti alveg eins vel hugsa sjer þetta á annan veg. Jeg segi aðeins það, að þetta frv. var bygt svona upp í fyrra, og þegar svo bæði stjórn útgáfudeildar, eða a. m. k. meiri hl. hennar, er frv. fylgjandi, og það hefir talsverðan styrk, líklega meiri hl., í Mentamálaráðinu, sem álítur, að þetta sje betra, þá finst mjer rjett að samþykkja það. En aftur á móti getur það vel komið fyrir, að seinni þingvilji breyti þessu skipulagi aftur.