30.04.1929
Neðri deild: 57. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2873 í B-deild Alþingistíðinda. (1753)
123. mál, ráðstafanir vegna alþingishátíðarinnar 1930
Magnús Guðmundsson:
Jeg vil ekki leggja á móti því, að stj. fái þessa heimild. En jeg vil taka það fram út af III. lið 1. gr. frv., að jeg samþykki hann með því skilyrði, að heimild þeirri, sem í honum felst, verði ekki beitt þannig, að útlendingar þeir, sem hingað koma til þess að skemta sjer 1930, verði látnir komast sem ódýrast út af því, því að það er hvergi siður í neinu landi að hlífa útlendum ferðamönnum við gjöldum. Til slíkra hátíðahalda sem þessara verða ríkin venjulega að leggja fram mikið fje, og er ekki ótítt, að þau búist við að fá mikið af því endurgreitt aftur, og það einmitt frá útlendingum. Jeg vil því alls ekki, að þetta ákvæði verði notað til þess að hlífa erlendum ferðalöngum, sem hingað koma til þess að skemta sjer.
Hitt er aftur rjett, að okkur ber skylda til að hugsa um, að þeir, sem hingað koma sem gestir okkar, verði ekki óhæfilega hart úti.