30.04.1929
Neðri deild: 57. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2876 í B-deild Alþingistíðinda. (1756)
123. mál, ráðstafanir vegna alþingishátíðarinnar 1930
Magnús Jónsson:
Jeg vil aðeins segja hv. 1. þm. Skagf. það, að það er fjarri því, að alþingishátíðarnefndin vilji draga úr því á nokkurn hátt, að erlendir túristar, sem hingað koma að ári, fái að borga fult fyrir sig. Annars gerir n. yfirleitt ekki mikið að því að draga þess háttar fólk hingað, því að hún telur, að hátíðin eigi fyrst og fremst að vera fyrir okkur sjálfa, og í öðru lagi fyrir þá góðu gesti, sem við bjóðum hingað. Um venjulega erlenda túrista kærum við okkur því ekkert, og þá því síður um það, að þeim sje nokkuð sjerstaklega hlíft. Og jeg verð að segja, að jeg skil vel þá menn, sem eru á móti því, að verið sje að hlaupa til og setja hámarksverð, því að jeg er venjulega manna mest á móti slíku. En 1930 stendur alveg sjerstaklega á hjá okkur að ýmsu leyti, og jeg býst við, að sjaldan hafi staðið eins einkennilega á annarsstaðar, þó víða væri leitað. Þegar sýningar og mikil hátíðahöld eru erlendis, er slíkt venjulega nálægt stórborgum, sem gleypa alla gestina, og er því ekki þörf neinna sjerstakra ráðstafana þeirra vegna. En þar sem svo sjerstaklega stendur á eins og hjer næsta ár, þá verður að telja ráðstafanir eins og felast í frv. þessu alveg nauðsynlegar, og jeg er þakklátur hv. fjhn. fyrir það, hve vel hún hefir brugðist við frv. þessu og sýnt því mikla alúð, enda þótt jeg vænti þess, að ekki komi til, að á heimildum þessum þurfi að halda. Annars er það algengt, að settar sjeu slíkar varúðarráðstafanir sem þessar; þannig hefir lögreglan t. d. leyfi til þess að koma inn á allar skemtanir og slíta þeim, ef þess gerist þörf. En að þess sje þörf, kemur mjög sjaldan fyrir; en eigi að síður getur það komið fyrir, og er ákvæðið því nauðsynlegt.
Hv. þm. Borgf. benti á, eins og hv. frsm. hefir líka tekið fram, að stj hafi í fullu trje við eiganda nýja gistihússins, en þess vegna átti hann einmitt að vera með III. lið 1. gr. frv., því að í honum liggur frekari takmörkun en hinu.
Skal jeg svo ekki fjölyrða um þetta frekar, en vil fyrir hönd undirbúningsnefndar þakka hv. fjhn. fyrir góða afgreiðslu málsins.