04.03.1929
Efri deild: 13. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2900 í B-deild Alþingistíðinda. (1799)
7. mál, vitar, sjómerki o.fl.
Frsm. (Erlingur Friðjónsson):
Jeg leit svo á, sem þessi breyt. á lögum um vita og sjómerki fjallaði aðallega um það, ef farartálmi yrði af skipi, sem sykki á siglingaleið. Af þeirri ástæðu las jeg upp ákvæði úr lögum og hafnarreglugerðum, sem jeg hefi kynt mjer um þetta efni, og athugaði ekki málið lengra. Nú skilst mjer á hæstv. fors.- og atvmrh., að þetta eigi að ná nokkuð lengra en til þess, ef skip sekkur á löggiltri höfn eða á almennri siglingaleið; m. ö. o., þetta eigi jafnvel að ná til þess að gera siglingaleiðir greiðfærar inn á hafnir, og jafnvel til að vinna þar á farartálmum, sem stafa af völdum náttúrunnar.
Ef á að taka málið á þessum grundvelli, má vel vera, að sjútvn. hefði íhugað það eitthvað nánar.
Hæstv. forsrh. var að tala um hvernig kostnaði við byggingu hafna væri skift niður, þegar ríkið og bæjarsjóðir eða hafnarsjóðir tækju þátt í kostnaðinum, og gat þess, að ríkissjóður greiddi þar 1/3 kostnaðar, en hafnarsjóður 2/3. En þegar ríkið leggur ekkert fram, hvernig á þá, þegar svo stendur á, að gera upp á milli ríkissjóðs og hafnarsjóðs?
Hæstv. ráðh. lagði til, að brtt. n. yrði feld, og þá væntanlega í þeim tilgangi, að frvgr. yrði samþ. óbreytt eins og hún liggur fyrir. Nú vil jeg benda á, að í frvgr. er gert ráð fyrir, að hlutaðeigandi hafnarsjóður eða bæjarsjóður leggi fram alt að helmingi eigna sinna til þess að rýma burt farartálma.
Ef það er rjett, að hjer sje um að ræða skuldlausa eign hafnarsjóða, þá getur þetta orðið mjög mikið fje, eins og t. d. mundi vera í Reykjavík og á Akureyri, þegar ætlast er til, að ríkissjóður komi þá fyrst með framlag sitt, þegar helmingurinn af eign hafnarsjóðanna hefir gengið til þess að nema farartálmann burt.
Þegar nú er litið á það, að ríkissjóður hefir kostað miklu minnu en lagt hefir verið til endurbóta á lendingarstöðum víðsvegar í sjávarþorpum landsins, finst mjer æðilangt gengið, að í stað þess að hafnarsjóðirnir greiði 300 krónur, eins og það er nú, komi fleiri tugir þúsunda. Því að oft hagar svo til, að hafnirnar eiga svo miklar eignir, að gjaldið getur orðið meira en 100 þús. kr. Mjer finst vera stigið of stórt spor, ef ganga á svo langt.