07.03.1929
Efri deild: 16. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2906 í B-deild Alþingistíðinda. (1805)

7. mál, vitar, sjómerki o.fl.

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg tel brtt. á þskj. 73 til bóta. Vil því mæla með því, að hún verði samþ. — Þá hefir og hv. frsm. n. gefið upplýsingar, sem skýra það vel, hvers vænta má um getu hafnarsjóða miðað við 1/2 árs tekjur þeirra. — En nú vildi jeg í því sambandi skjóta einni spurningu til hv. n., og hún er um það, hvernig skilja beri brtt. á þskj. 56, þar sem sagt er, að hafnarsjóður skuli bera kostnað af því að nema í burt farartálma, alt að helmingi árstekna það ár. Er hjer einungis átt við eitt ár, eða er átt við fleiri? Nú getur það tekið fleiri ár að nema burt farartálma, til dæmis þegar stórt skip sekkur. Er þá átt við öll þau ár, sem verkið tekur? Eða ef aðeins er átt við eitt ár, er það þá árið, sem verkið er byrjað, eða verkinu er lokið? Eða er það árið, sem skipið sekkur? Þetta væri æskilegt, að hv. n. vildi athuga til 3. umr.