20.03.1929
Neðri deild: 27. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í B-deild Alþingistíðinda. (181)

2. mál, fiskiræktarfélög

Bjarni Ásgeirsson:

Jeg var búinn að tala fyrir till. þessari við 2. umr. og þarf engu þar við að bæta. Hún er gerð til að tryggja það, að samþyktir þær, er kunna að verða gerðar eftir fiskiræktarlögunum, brjóti ekki í bág við þau laxveiðilög, sem gilda á hverjum tíma, Niðurlag 10. gr. hljóðar svo: „Með samþykt verður eigi breytt sjerákvæðum laga um friðun á laxi, nr. 5, 19. febr. 1886“. Mjer virðist ekki trygt með þessu, að samþyktir geti ekki brotið í bág við laxveiðilög, er síðar kunna að verða sett. Jeg vænti, að hv. þd. geti fallist á þessa brtt.; hún getur engu spilt, en að margra skoðunum orðið til bóta.