30.04.1929
Neðri deild: 57. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2920 í B-deild Alþingistíðinda. (1830)

7. mál, vitar, sjómerki o.fl.

Frsm. minni hl. (Sveinn Ólafsson):

Jeg ætla ekki að deila lengi um þetta atriði, hvorki við hv. frsm. meiri hl. eða aðra. Skal einungis taka það fram, að ef brtt. meiri hl. verða samþ., þá kemst frv. í sama horf og sama form og það hafði er það fór frá Nd. áður. Tel jeg ekki ósennilegt, að hv. Ed. mundi geta sætt sig við þau úrslit, ef til kæmi, en reyndar mun leið frv. liggja til sameinaðs þings, ef svo fer. Jeg skal bæta því við, að ef svo færi, þá yrði kostur ríkissjóðs þó öllu lakari en samkv. till. hv. Ed. og minni hl., og kæmi það vitanlega til hagsbóta fyrir hina tekjumeiri hafnarsjóði, sem síst þurfa styrktar við. Að öðru leyti skal jeg ekki fara neitt út í það, hvort jeg eða hv. frsm. meiri hl. hafi skilið rjett muninn á till. meiri og minni hl. Það mun verða skorið úr því við atkvgr., og er hún þó ekki efsti dómur. Hinsvegar er mjer þetta ekkert kappsmál og vil þó vænta þess. að nokkur bót fáist á þeim eldri og úreltu ákvæðum þessara laga.