07.05.1929
Sameinað þing: 4. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2927 í B-deild Alþingistíðinda. (1844)
7. mál, vitar, sjómerki o.fl.
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg vil benda á það, að eins og löggjöfinni er nú háttað, getur hvaða hafnarnefnd sem er úti um landið gert ráðstafanir, sem hafa tuga þúsunda kr. útgjöld í för með sjer fyrir ríkið, án þess að spyrja stj. Þó að ekki væri við öðru gert en þessu, tel jeg það stórt spor til bóta.
Það er sýnt, að ekki er hægt á þessu þingi að stíga það spor, sem stj. og hv. Ed. leggur til, að stigið verði, og verður þess vegna að lúta að því, að stíga það sporið, sem hægt er að stíga, þó að skemmra sje. En jeg er reiðubúinn til þess að vinna að því með hv. 2. þm. S.-M., að hitt sporið verði stigið á næsta þingi. En jeg legg áherslu á það, að þetta frv. nái fram að ganga, ríkissjóðsins vegna.