16.04.1929
Neðri deild: 46. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2928 í B-deild Alþingistíðinda. (1852)

88. mál, tilbúinn áburður

Frsm. (Jón Sigurðsson):

Landbn. hefir athugað frv. þetta og borið sig saman við mann þann, er sjerstaklega hefir haft kaup og útsendingu áburðarins á hendi undanfarið, Árna G. Eylands. Mjer er óhætt að segja, að n. hefir varið miklum tíma í að velta því fyrir sjer, hvernig styrknum yrði best fyrir komið og öllum gert sem jafnast undir höfði. Eftir þá íhugun hefir n. komist að þeirri niðurstöðu, að ekki sje um aðra leið að ræða líklegri til að ráða bót á misrjettinu en þá, sem stungið er upp á í frv.

N. leggur til, að í staðinn fyrir „áburðarmagn (þyngd)“ í frv. komi: söluverð. Er það gert að bendingu Árna. Nú fá menn 3 kr. flutningsstyrk á áburðarsekk, sem ekki kostar nema 9–10 kr. Sama styrk fá þeir, er kaupa t. d. „nitrophoska“, en af því kostar sekkurinn 30 kr. Í þessum áburði eru öll áburðarefni sameinuð og fyrirferðin hlutfallslega lítil. En það er ekki ástæða til að ýta undir menn til að kaupa þau efnasambönd, sem eru sjerstaklega mikil fyrirferðar, og kosta því ríkissjóð miklu meira í flutningsgjöldum.

Í öðru lagi leggur n. til, að í stað orðanna „fyrir hver áramót“ í 1. málslið 5. málsgr. komi: fyrir 1. október. Hafði n. þar í huga, að menn gætu fengið styrkinn útborgaðan um áramót. Það er alment svo, að menn gera upp viðskifti sín um áramótin. Er það bændum því hagkvæmara að fá styrkinn útborgaðan það snemma. Er því ástæða til að hraða skýrslusöfnuninni.

Í 3. brtt. er það ekki nánar ákveðið hvernig skírteini þau skuli vera, er fylgja eiga skýrslunum. Er það lagt á vald atvmrh. að ákveða það með reglugerð. Ráðunautur n. skýrði henni frá, að sjer hefði flogið í hug, að láta mætti sjerstakan seðil fylgja hverjum sekk, er notandi fengi í hendur. Þessir seðlar fylgdu svo skýrslunum sem sönnunargagn fyrir því, að þeir hefðu keypt og notað áburðinn, en þetta er bara lausleg uppástunga, því að n. vildi ekki ákveða, að svona skyldi það vera og ekki öðruvísi. Það getur verið um fleiri leiðir að ræða, og því taldi hún rjett að fela atvmrh. ákvörðunarrjettinn og að gefa út reglugerð, sem styddist við till. þessara manna. — Jeg mun nú ekki fjölyrða frekar um þetta mál, því að jeg hefi flutt það bæði í fyrra og nú, en vona, að því verði nú vel tekið.