16.04.1929
Neðri deild: 46. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2932 í B-deild Alþingistíðinda. (1855)
88. mál, tilbúinn áburður
Frsm. (Jón Sigurðsson):
Jeg þarf ekki mörgu að svara í ræðu hæstv. forsrh., en hvað snertir tilmæli hans um að láta S. Í. S, en ekki Búnaðarfjel. hafa á hendi skiftingu styrksins, þá vil jeg geta þess, að jeg hefi litið svo á, að starfsemi þessara fjelaga væri í rauninni svo hliðstæð og samantvinnuð, að jeg gekk út frá því sem gefnu, að þótt Búnaðarfjelagið fengi skýrslurnar, myndi það bera sig saman við framkvæmdarstjóra Sambandsins, er hefir áburðarverslunina, enda hefir Búnaðarfjel. yfir mönnum að ráða, sem hafa sjerstakan kunnugleika á þessu sviði til að bera, svo jeg álít, að Búnaðarfjel. standi þess vegna betur að vígi við að reikna út það, sem reikna þarf.
Hv. þm. Mýr. hefi jeg ekki mögu að svara. Það er tæplega ástæða til að deila um, hvort hjer hafi verið misrjetti á ferðum. Það liggur svo í augum uppi, þegar um áburðarflutninginn er að ræða, þá er mikill munur á aðstöðu manna. Ríkissjóður hefir ljett undir með áburðarflutning, þannig að þeir, sem við sjóinn búa, fá allan kostnaðinn greiddan, en þeir, sem búa fram til dala, fá aðeins brothluta af flutningskostnaðinum heim til sín. Þetta kallar þm. Mýr. aðstöðumun, en þetta er misrjetti og ranglæti, sem hefir komist inn vegna aðstöðumunar þessara tveggja aðila, og þann aðstöðumun verður löggjafarvaldið að jafna.
Hv. þm. sagði, að með þessu frv. væri ekki meiru rjettlæti náð en verið hefði áður, og með frv. væri þeim, er langt ættu í kaupstað, gert hærra undir höfði en öðrum. Þetta er fullkominn misskilningur. Allir fá hlutfalklegan styrk, miðað við heildarflutningskostnað frá útlöndum og heim til sín. Þá spurði hv. þm., hvernig ætti að skilja 2. tölulið, viðvíkjandi flutningi áburðarins til hjeraðanna. Jeg fyrir mitt leyti hefi litið svo á, að Búnaðarfjelagið ætti að miða við flutninginn til staðar, sem lægi sem næst miðju hreppsins, en hreppsbúnaðarfjelagið jafna svo aðstöðumuninn milli bænda innan hreppa.