16.04.1929
Neðri deild: 46. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2933 í B-deild Alþingistíðinda. (1856)
88. mál, tilbúinn áburður
Jón Auðunn Jónsson:
Jeg vildi beina þeim tilmælum til hv. þdm., að þar sem um styrk til flutnings áburðarins er að ræða, hlutist þeir til um, að þessi vara verði flutt án burðargjalds með þeim skipum, sem landið hefir yfir að ráða, svo að við það verði enginn kostnaðarauki fyrir ríkissjóð. Jeg hefi átt tal við formann þess báts, sem gengur um Ísafjarðardjúp, og farið fram á þetta við hann, og hefir hann tekið mjög vel í það. Þetta mun spara um 1100 kr. samkv. gildandi gjaldskrá, en jeg tel ekki nema sanngjarnt, að bátarnir flytji áburðinn landinu að kostnaðarlausu.