16.04.1929
Neðri deild: 46. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2934 í B-deild Alþingistíðinda. (1857)
88. mál, tilbúinn áburður
Hannes Jónsson:
Jeg hefi ekki viljað ganga inn á þá skoðun, að það sje rjett, sem í raun og veru felst í þessu frv. eins og það er úr garði gert. Hv. þm. Mýr. hefir lýst skoðun sinni á málinu, og jeg get sagt, að jeg er honum að mörgu leyti sammála. Jeg get yfirleitt ekki sjeð neitt ranglæti í því, að allir njóti sömu kjara um kaup á áburði í þeim verslunarstöðum, sem hann er seldur. Hitt er annað mál, að menn eru mismunandi vel settir til að sækja þessa verslun eins og aðra. Jeg hefi aldrei orðið var við till. í þá átt að meta hús hærra til lántöku úr byggingar- og landnámssjóði fyrir það, þó það standi langt frá verslunarstað, og getur þó verið mikill munur að því, hvað það kostar menn að flytja byggingarefni að sjer. Enginn munur er heldur gerður á því, hvort menn verða að flytja steypuefni heila bæjarleið að eða hvort þeir fá það upp úr grunninum hjá sjer. Eins er því farið með styrk, sem veittur er til ræktunar landsins. Þar er enginn munur gerður á því, hvort um víðáttumikið sljettlendi er að ræða, þar sem vegir liggja um og því auðvelt að koma við dráttarvjelum, eða afdali, þar sem þröngt er til ræktunar og vegalaust og engum vjelum verður við komið. Svona gjalda menn aðstöðu sinnar á allan hátt, en það getur verið rjettmætt að upphefja þann aðstöðumun, og er að mörgu leyti nauðsynlegt. Að því er stefnt með vega- og símalagningu, auknum samgöngum á sjó og öðrum slíkum samgöngubótum. Lengra en þetta tel jeg hæpið, að hjálp þjóðfjelagsins geti náð.
Af þessum ástæðum tel jeg frv. þetta til lítilla þjóðþrifa, enda er hjer um svo örlítið brot að ræða af því óhagræði, sem menn verða fyrir vegna aðstöðu sinnar, að þess gætir varla. Ennfremur er hætt við, að í framkvæmdinni myndist órjettlæti, sem örðugt verði við að eiga. Jeg get t. d. ekki hugsað mjer, að gerður verði munur á styrkveitingu til flutninga á bátum, bílum, kerrum eða klökkum, og getur þó verið um mjög mikinn mismun að ræða.
Hv. frsm. gerir ráð fyrir, að miðað verði við flutningskostnað inn í miðjan hreppinn. Hvernig ætlar hann að fara með Kirkjuhvammshrepp? Hvammstangi liggur nálægt miðju hreppsins. Á ekki að taka neitt tillit til flutningskostnaðar um hann? Það er þó lengra á hreppsenda frá Hvammstanga heldur en í miðjan Ytri-Torfustaðahrepp, sem sjálfsagt fær styrk vegna landflutninga.
Alla þessa örðugleika hafa hv. flm. frv. sjálfsagt sjeð, þó þeir hafi ekki viljað við þá kannast, þegar bent er á þá. Þeir leika sjer að því að loka augunum fyrir þessu, eða a. m. k. draga annað augað í pung. Þó þeir hinsvegar viðurkenni gallana með því að setja engin ákvæði um úthlutun styrksins í frv., en ætlast til, að stj. gefi út reglugerð, sem taki af þeim allan vandann. Varla er þetta gert af einskæru trausti til stj.; fremur má ætla, að þeim sje ósárt um, þó stj. gefi út reglugerð, sem hlýtur að leiða af sjer ágreining og óánægju.
Tíminn mun leiða það í ljós, að með þessu frv. er stefnt inn á braut, sem ógreið reynist.